Guðdómleg tónlist sem ég kemst aldrei yfir. Þetta varð sönn ást alveg frá því ég heyrði fyrsta lagið í útvarpinu á Seyðisfirði í kringum 1992 Ég náði ekki að heyra nafnið á hljómsveitinni en lagið var spilað út og inn og ég var desperet að komast að því hverjir þetta væru en svo einn daginn gerðist það og þá fóru hjólin að snúast. Ég snéri baki við þeim þegar Blur lýsti því yfir að þeir fíluðu þá og þar með fóru allir að hlusta á þá. Svo kom gamall vinur og crazy aðdáandi og minnti mig á þá og ég vissi ekki hvort ég grét eða hló þegar ég hlustaði á þá. Mikið var það unaðslegt. Dagurinn og næstu dagar urðu Pavement-dagar. Ég hvorki heyrði né sá nokkuð annað. Heilinn neitaði að hætta söngla þetta. Originally uploaded by Pensillinn.












