Jæja, loksins réðumst við Bjarki á græna skrímslið. Ótrúlega smitandi baðherbergi. Það var nokkuð kúl en var voða erfitt að láta það líta út eins og það væri hreint þarna inni. Við máluðum flísarnar hvítar, sem voru grænar. Tókum dúkinn af gólfinu sem var kremlitaður og hundgamall. Undir dúknum leyndust síðan plastflísar og undir þeim var svört málning sem var besaster að juggast á. Bjarki stórslasaðist á baráttunni við hana og ég fékk líka smá íþróttameiðsli en verð að játa að Bjarki vann mig í því. Það endaði með að við máluðum yfir gólfið með dökk-grárri lakkmálningu sem kemur rosalega vel út. Við ætluðum að lakka gólfið á hreina steypuna en vegna svarta draslsins urðu önnur málalok, og erum vð bara heavy ánægð!
Lyktin er líka gone! Var alltaf svo skrítin lykt, ekki vegna þess að við Bjarki erum að merkja okkur svæði..bara old shit under the floor. Við erum hérna búin með eina umferð, eigum eftir að fara 2 í viðbót.
2 ummæli:
Er tetta alvoru badherbergid ykkar........ sjitt hvad tetta er fint !!!!!!!!!
Þetta er ekkert smá orðið flott. Við erum að tala að þetta er bara allt annað baðherbergi. Flott hjá ykkur. Kv, Guðný
Skrifa ummæli