Helgin var voða næs, ætluðum að chilla um helgina en endaði með djammi á laugardaginn. Fórum á Sirkus að hitta Matta og nokkra norsara sem voru í slagtogi með honum og eins og við var að búast, talaði ég mest af öllum. Sennilega hljómaði ég eins og tónlist..eða suð þar sem ekki var hægt að skilja nema fjórða hvert orð þar sem ég blandaði saman öllum norðurlandamálum sem ég hef heyrt. Maður verður svo sköpunarglaður í glasi! Við Bjarki og Sæþór flúðum Sirkus, oj segi ég nú bara, þvílíkur hrærigrautur af wannabes. Andrúmsloftið var meira að segja trendy..he he. Það mætti halda að maður sé að upplifa Baltasar myndina 101 Reykjavík aftur og aftur. Fórum á Gaukinn á tónleika með Mínus og Brainpolice. Hittum þar Adda þungarokkara og videokall. Þetta voru fínir tónleikar, hitti 2 meðlimi úr Days of our lives, tók myndir af þeim fyrir nokkru og þeir notuðu eina af þeim í blöðin um daginn til að auglýsa tónleika. Skemmtilegir strákar og gaman að hitta þá. Nói Páll er alltaf jafn mikið yndi. Hann er manneskja sem ég skil ekki enn í dag. Hann er allt annað en það sem ég bjóst við að eiga fyrir barn. Geggjað, 2 karlmenn sem koma sífellt á óvart! Setti inn mynd sem ég tók af Bjarka um daginn.
þriðjudagur, mars 15, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli