fimmtudagur, mars 31, 2005

Dægurmál

Nói Páll fékk greinilega það besta frá móður sinni..slæm eyru. Maður er farinn að leggja lúður við eyrað til að heyra nokkurn skapaðan hlut. Þetta finnst Bjarka til dæmis agalega skemmtilegt og gefandi og Nóa Páli finnst þetta voða listamannslegt. Nói Páll er kominn með í eyrun aftur. Er með rör en hefur núna nýverið alltaf fengið af og til í eyrun. Við erum samt rosalega ánægð með hvað rörin hafa gert fyrir hann. Áður en þau komu var hann með króníska eyrnabólgu. Núna er þetta aðallega vegna kvefs og kulda. Hann er sem betur fer mjög góður þrátt fyriri þetta. Það eina sem maður tekur eftir er að hann vaknar aðeins fyrr en venjulega á morgnana. Bjarki fær ekkert svona, í eyrun og svoleiðs. Hann er gallalaus maðurinn! Hann svitnar ekki einu sinni..not human. Á meðan ég er eins og garðslanga þá kemur ekki dropi hjá honum. Hann sagði svolítið hræðilegt um daginn..með svitamálin. Hann svitnar ekki af því að hann hefur ekkert á samviskunni..he he.

Engin ummæli: