þriðjudagur, mars 29, 2005

Fermingarferðin austur

Ein skemmtilegasta ferming sem ég hef farið í, haldin á skírdag, var hjá Karen Elfu, dóttur Ólu systur minnar og Jóa Lalla á Eskifirði. Það var svo mikið hlegið og vil ég þakka Kristjáni frænda mínum, syni Ólu meðal annarra fyrir frábæran húmor. Eskfirðingar eru engum líkir þegar kemur að messum..og málverkavali. Maður vissi ekki hvort þetta væri giftingar-jarðarfarar-fermingar-hugleiðslu eða gospellmessa. Þetta var svo óútreiknanlegt, maður beið bara spenntur eftir hvað kæmi næst. Margir tóku með sér kodda þar sem hún var rúmlega 1 1/2 tími en þeir forvitnu vöktu til að sjá næsta happening. Karen var á endanum fermd þrátt fyrir herforingjalúkkið og ákafann. Veislan var mjög vel heppnuð og þar gerðum við Kristján gott brainstorming. Við fundum uppá hraðstillanlegum gluggum í bíla. Hratt þegar maður gerir eitthvað af sér og þarf skyndilega að bruna í burtu og hægt t.d. við rómantískt daður og vill fara af vettvangi í slow motion. Við áttum brilliant hugmyndir þetta kvöld og Jóhann pabbi hans slóst vel í hópinn. Ég sé enn eftir að hafa ekki tekið myndir af sturtuklefanum! Ýmislegt kom uppá, ég ætlaði að taka mynd af Elsu frænku og hún pósaði svo mikið að hún missti nokkrar kökur ofaná risastóra rjómaköku í veislunni sem varð mikið drama þar sem fermingarbarnið er haldið fullkomnunaráráttu og gestirnir voru ókomnir. Óla systir var alsæl með þessar háu fjárhæðir sem fermingarbarnið halaði inn og átti mjög erfitt með að hætta að þukkla peningana. Ég var heppin að ná þessari mynd henni.Karen Elfa 43
Originally uploaded by Pensillinn.

6
1
Originally uploaded by Pensillinn.

Engin ummæli: