föstudagur, mars 11, 2005
Föstudagur=Idol og bjór
Ekki veit ég afhverju maður fær sér öl á þessum rosalega merka degi en það er víst eitthvað sem gerist bara ósjálfrátt. Kannski vegna þess að núna er Idolið orðið svo leiðinlegt að maður dettur bara í það. Maður veit alveg hver vinnur og hér með lýsi ég því yfir, já ég er Idol-lúði og held að Hildur Vala vinni. Reyndar held ég svo mikið með henni að ég hrífst af henni kynferðislega..he he, maybe not. Það yrði svolítið ugly kynlíf, pínu sadó og kertaljós. Greyið stelpan, hún veit ekkert hvað er mikið af geðsjúklingum til í heiminum. Ég vil þakka Kötu vinkonu minni fyrir að benda á síðuna mína á sinni Blogger síðu og megi hún hvíla í friði fyrir það, sæta arkitekta-þungarokks sjéníið mitt. Fór í ræktina í morgun, iss, var erfitt. Svitinn spratt af enninu bara við það hvað það var leiðinlegt í sjónvarpinu og útvarpinu. Restin af púlinu var að skipta um stöðvar og telja mínúturnar á hlaupabrettinu og hugsa um hvað ég ætti að fá mér að éta þegar heim kæmi. Ég er atvinnuleysingi. Langaði bara að segja það. Held ég sé komin með það á sálina. Maður ætti kannski að kynna sig alltaf þannig! Jæja, dagurinn er ekki hálfnaður og ég ætla að fara gera eitthvað af viti.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli