MMMmm, já hvar á maður að byrja. Ég get stundum ekki forgangsraðað vegna þess að ég hef ekki fengið kaffið mitt. Ég breytist í aðra manneskju ef ég hef ekki fengið sopann minn..og það er eins gott að í þessum sopa leynist öll sú eftirvænting sem ég hef haft um hann. Hann á að gefa mér þá tilfinningu sem allir fíklar þrá að fá. Þessi alsæla og afslöppun, mmm...hérna er gott að vera. Kaffi er hrikalega misjafnt og verð ég að segja að uppáhalds kaffið í augnablikinu er Old Java og Celebes Kalossi, bæði hjá Te & Kaffi. Sjúklega bragðmikið og í senn mjúkt, en alls ekki væmið. Ég er að tala um kaffi, ekki nammikokteilana.
kaffi
Originally uploaded by Pensillinn.
kaffi
Originally uploaded by Pensillinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli