Ó mæ god, hvað er að gerast í heiminum? Þetta eru nú meiri helvítis ógeðis þættirnir. Í síðasta þætti var eitt atriði, bara sækó fyndið. Það var manneskja sem var umvafin sárabindi allan hausinn og blóðrautt allt undir og ég sver að hún minnti mig á einhverja hryllingsmyndapersónu og svo var hún alltaf sýnd aftur og aftur og í Slow motion. Myndi maður ekki halda að það væri verið að gera grín að manni? Svo er allt svo súperíkt að maður treystir engan vegin læknunum og þessu liði þarna. Maður hugsar bara, "hvað eru þeir búnir að drepa marga"? Þvílík fúskalykt af þessu öllu saman. Það er líka geðveikt fyndið þegar þeir eru að teikna á fólkið fyrir aðgerð, hvað eigi að gera, svona eins og var gert í Extream makeover, þá rissa þeir upp einhverjum rosalegum stikum um allan líkamann, meira eins og þeir séu að fíflast eða að reyna að líta út eins og Pro. Gott dæmi um klikkun, þá var ein manneskjan þarna meira geð-veik heldur en með útlitsvandamál. Hún ætlaði að bjarga sambandinu sínu með því að láta laga á sér húðina..líka fyrir börnin því hún vildi ekki að börnin sín myndu alast upp við svona ljóta húð móður sinnar. Ég held að sambandið hennar hafi meira verið búið því hún sjálf er KÚKÚ. Svona ástand minnir mig bara á Alfred Hitchcock, kannski gerði hann þessa þætti.
Hitchcock
Originally uploaded by Pensillinn.
Hitchcock
Originally uploaded by Pensillinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli