laugardagur, apríl 30, 2005

Opinn dagur í leikskólanum í dag.

Við Bjarki og Nói mættum í leikskólann kl.11 að sjá hvað krakkarnir hafa verið að gera. Þetta var æðislega gaman. Allir foreldrarnir og börnin saman og fóstrurnar að segja manni hvað barnið manns væri ótrúlega duglegt og yndislegt, ekki leiðinlegt að heyra svona. Leikföngin voru sýnd, kallast Könnunarleikurinn, var sýnt video af þeim að leika sér með þessi leikföng. Var mjög áhugavert að sjá hvernig þau leika sér með hluti úr umhverfinu og finnst þetta rosalega spennandi, kóktappar, alls kyns hólkar af girni, tvinna, wc pappír o.s.frv. Þetta elska þau, svo var auðvitað boðið uppá veitingar og að lokum sungu öll börnin 3 lög. Það var algjör snilld að sjá þau, þau stóðu sig svo vel og voru greinilega búin að æfa þetta voða vel, alveg að springa úr stolti. Nói Páll söng ekki með, vildi það ekki. Hann er ekkert fyrir svona stand ups.

Mamma og Nói
Originally uploaded by Pensillinn.


Noi og Hrefna
Originally uploaded by Pensillinn.

FRÁBÆRT-ÆÐISLEGT!?



Originally uploaded by Pensillinn.

Hvað er málið???
Dísús kræst, hvar byrjar maður að gagnrýna svona dæmi. Þátturinn er svo illa heppnaður að það fær mann til að líða illa. Þessir þættir gætu alveg verið skemmtilegir, svona eins og þegar Hálfdán stjórnaði honum en nú er hann alveg kominn á botninn. Helgi Idol er hreint og beint horror í þessu..JÁ FRÁBÆRT..ÆÐISLEGT..NÁKVÆMLEGA..ALGJÖRLEGA..GLÆSILEGT..frasarnir eru endalausir og alltaf sömu þegar hann svarar..FRÁBÆRT..Það fyrsta sem ég hugsaði var bara, ætli hann tali svona við vini sína. Í einum þættinum var stelpa að tala um eitthvað neikvætt og hann bara..FRÁBÆRT..ÆÐISLEGT. Við Bjarki litum bara á hvort annað??? Þau eru alltof vandræðaleg..alltof. Þátturinn í gær var einstaklega hrikalegur. Helgi toppaði öll mistök, ætlaði að loka þættinum en þá átti eftir að velja eina af þessum 2 konum sem voru ekki valdar og kynnti þær síðan sem 2 herramenn??? Ég vill endilega benda fólki á að tjékka á því hvernig hann stendur. Lappirnar í sundur, útskeifur með mjaðmirnar fram og magann inn, mjög spes. Stelpan er bara ósýnileg, kemur aldrei með neitt og finnst örugglega Helgi drepfyndinn og mjög wild??? Þegar sjónvarpsstöð er að reyna að gera low budget þætti ætti hún frekar að eyða peningum í betri hosta en sviðsmyndina.

föstudagur, apríl 29, 2005

Er stutt í þurrktímabilið?

Nú á maður ekki sjö dagana sæla, bara svona helgarnar he he. Nei, Sandra hættu þessu!!! Allt stefnir í að ég þurfi að þurrka mig upp þar sem maður er að verða eins og brjálaður unglingur eða útbrunnið gamalmenni..pissfullt! Hverjum finnst það aðlaðandi?? Einu myndirnar sem Nói Páll fær að sjá eru djamm-myndir, eða allt stefnir í það. Ég man enn hvar ég legg bílnum og svoleiðis þó svo að um daginn hafi ég verið langt frá því. Ég er nefnilega atvinnulaus og eins og atvinnuleysingjar kannast við, þá verður maður afskaplega heiladauður af því..hasshausar eru kannski svipaðir. Ég ákvað að gera eitthvað í því og gerast bissí. Heilinn hefur tekið stökk, minnið er að skána en með áfengi verður það bara vont og versnar.
Þetta var pæling dagsins.

mánudagur, apríl 25, 2005

Gifting Lindu og Eggerts

Ég, Gugga fóstra og Svava arkitekt fórum saman í kirkjuna og líka í veisluna. Bjarki mætti í veisluna og brá víst svolítið að sjá hversu drukknar við Gugga vorum orðnar..strax um 9..Brúðkaupið var alveg meiriháttar fallegt og virkilega flott. Þau giftu sig í Laugarnesskirkju á laugardeginum s.l. og voru svo með veislu í Kópavoginum eftir athöfnina..of course. Maður mátti búast við flottri tónlist en þessu bjóst ég ekki við. Þau voru með einhverja geimveru sem söng óhugnarlega vel Manni langaði bara að panta hann á staðnum fyrir brúðkaupið manns..árið 2025, ég meina so?! Enginn af okkur stelpunum kannaðist við þennan strák sem söng svona en það er ekki búið. Stelpa um 10 ára, nemandi Lindu, söng líka og Vá!! Rosalega er skrítið að sjá svona unga stelpu með svona mikla hæfileika svo er maður að reyna eitthvað og heldur að maður sé alveg ágætis söngvari..ojojojojoj segi ég bara og fer í söng-strike. Það minnisstæðast í þessu var sem sagt tónlistin og líka kjóllinn hennar Lindu sem var rosalega flottur og algjörlega sniðinn eftir hennar stíl. Líka verð ég að segja að það sé minnisstætt þegar maður sér svona ástfangið par gifta sig eftir 10 ára samband. Þau eiga 3 ára strák sem heitir Dagur og er algjört krútt.
Kvöldið átti heldur betur eftir að taka á sig mynd þar sem fylleríið varð æ meira og meira. Við stelpurnar fórum víst uppí ræðupúlt og sögðum nokkur orð um Lindu og að sjálfsögð þurfti ég að gera eitthvað meira og SÖNG brot úr lagi...guð minn góður..fyrir fullt af fólki sem ég þekki ekki rass, og svo fór ég með ljóð sem ég samdi á staðnum..undir áhrifum!
Þetta er ekki búið því kvöldið endaði með íkveikju á fæti Guðrúnar og hún endaði á Slysó með 1 og 2. stigs bruna og komin hálfa leið í bleiku skýin á Morfíni. Eitt verð ég að segja, það var FULLT TUNGL!!! I Blame it on the MOON. Ef það hefði verið sól hefði þetta aldrei gerst..

1
Originally uploaded by Pensillinn.
32A

Föstudagskúlið


26
Originally uploaded by Pensillinn.

Köben klikkun

Ferðin var meiriháttar. Við stelpurnar lifðum eins og Madonnur, borðuðum the most amazing mat sem ég hef nokkurn tíman bragðað og skemmtum okkur frábærlega. Við vorum hinar 5 fræknu og allar í banastuði. Við gistum hjá vinkonu Guðrúnar, henni Hrund sem er í námi í Köben. Íbúðin var undirlögð þessa 5 daga sem ég var þarna og þetta var eins og í fangabúðum, það þurfti að skipuleggja sturtuferðir og alles. Það var mikið verslað og hemm, sumir meira en aðrir..Fórum í Krisjaníu og ég trúði ekki mínum eigin augum. Húsin og fólkið, vá! Rosalega var gaman að sjá þetta. Eitt verð ég að segja að allt í ferðinni var perfect, nema sá ótrúlegi hlutur að danir eru orðnir mjög miklir rasistar..og það á Íslendinga! Við lentum nokkru sinnum í ótrúlegum tilfellum, öll tengdust verslunum og afgreiðslustörfum. Auðvitað lét maður þetta ekki eyðileggja neitt en kom manni samt mjög á óvart.Til að sja fleiri myndir frá ferðinni, klikkið þá á myndasíðulinkinn minn hér til hliðar.
SMSGudr�n Sylv�a Klara og GuggaGuggaKlara

laugardagur, apríl 09, 2005

Hræðilegt en æðislegt

Vinkona mín, hún Gugga, er að fara til Köben á miðvikudaginn og mig langar rosalega með henni en vegna fjárskorts var maður búinn að útiloka það. Í gær spurði Bjarki mig hvort ég ætlaði að fara og ???, ég fékk bara hnút í magann og missti andlitið. Þetta er alltaf svo lítið mál hjá honum. Alltaf verð ég jafn hissa á hvað Bjarki er ótrúlega sanngjarn í sér.."Bara gríptu tækifærið" og ég náttúrulega beint á netið..með semingi þar sem ég hef alltaf svo miklar áhyggjur af peningum, og allt kom fyrir ekki. Þessi helvítis íslensku flugfélög eru okrarar dauðans. Maður varð virkilega pisst. Það var laust í sömu vél og Gugga fer í en þá gat ég ekki bókað á netinu vegna einhverrar bilunar og svo daginn eftir var sætið farið þannig að ef ég vildi komast til Köben þurfti ég að fara degi seinna og borga 78 þús!!! Er ekki allt í lagi með þessa fávita?..til Köben??? Ég tjékkaði á Icelandexpress sem manni finnst vera vinur manns, þú veist, litla mannsins en nei, þeir eru bara dýrir líka. Mér er sama um stuttan fyrirvara, þetta er bjánalegt að þó svo að fyrirvarinn sé stuttur að þá sé hægt að hækka verðið 4x Ég meina, vélin fer hvort eð er. Afhverju hækka verðin þó fyrirvarinn sé stuttur, afhverju ekki bara sama verð? Plís ekki svara þessu þar sem ég veit að þetta er einfaldlega fjárkúgun, voða sniðugt bissness trick að því meiri sem þörfin er..stuttur fyrirvari, því auðveldara er að rukka meira fyrir farið, fock that shit!

Fjölskyldan í labbitúr

Mér finnst þetta svo skemmtileg mynd. Mikil harka í svip Nóa Páls. Ég sá fyrir mér þá 2 flýjandi undan undarlegum og súrealískum náttúruhamförum. Hann getur stundum verið svo röff eitthvað og lætur engan hafa áhrif á sig. Bara hann einn að njóta náttúrunnar, no bullshit! Ég gerði myndina svolítið eins og hann er stundum, léttgeggjaður og súrealískur.5

fimmtudagur, apríl 07, 2005

Afhverju er einn meðlimur Pavement mjög sjaldan á hljómsveitarmyndunum

Hann Ýmir, Pavement vinur minn er mikill tónlistarunnandi og mig grunar að hann fari með öll launin sín í tónlist og kannski búinn að veðsetja húsið líka..he he. Hjördís kærasta hans og vinkona mín hristir bara hausinn yfir þessu. Það er einmitt mynd af þeim saman hér neðar á blogginu. Ég fékk svo fræðandi og skemmtilegt mail frá honum í gær að ég ákvað að setja það bara á bloggið. So here u go og lengi lifi Pavement og sannir aðdáendur þeirra.

hæhæ, ég hef ekki komist í póstin svo lengi, gaman að sjá þetta, ánægður með þessi skrif þín :) þegar ég sá myndina af pavement þá tók ég eftir að Spiral Stairs (aka Scott Kannberg) var ekki á þessari mynd, en eins og þú veist þá stofnaði hann hljómsveitina ásamt söngvaranum stephen malkmus, ég skrifa hér nokkrar línur úr Pavement bókinni "Perfect Sound Forever" um af hverju hann var ekki á sumum myndum.

.......with their success, it was getting more difficult to follow the original, unwritten rules that the band had set out to follow. Basic rules such as no band pictures on the records,no major interviews, and the overall cultivation of as much obscure mythmaking as they could muster was all slipping away.

This hit Kannberg the hardest. He was the band member that wanted to keep the indie ideals more than anyone else "I always wanted Pavement to be mysterious" he says " when we started Crooked Rain there was alot of tension within the
band because i wanted us still to be like "don´t take pictures, don´t do interviews, so it got weird.

For Kannberg, things came to a head when Rolling Stone magazine approached the band to do a feature story. It wasn´t so much that he hated Rolling Stone though he did harbor less then warm feelings for the mag - it was more that he
didn´t want such a pillar of the musical establishment to dictate the terms to his band. Part of the deal for the feature was that the band had to take part in an organized photo shoot.

We were all like, we don´t want to do that "says Kannberg, we were like, give them a photo we already have. The response was no photo shoot, no feature story. I was like well fuck´em " he continues " we didn´t need rolling stone, Where were they for the last record?? I just voiced my opinion, but Stephen really wanted to do it and instead of fighting them i just said whatever. Then when it came time to do it i just said "i´m not going to do this, it was a few hours before.

I said, If you guys want to be in Rolling Stone then do it but i don´t want to be in Rolling Stone and i don´t want this band to be pushed around like this...........

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Loksins varð Lessuhittingur

Mér er sönn ánægja að segja frá því að í kvöld varð eðalsamkoma okkar lessanna. Við erum hópur sem vorum að vinna á svokölluðu lessulofti í Vöruhótelinu sem er hluti af Eimskip batteríinu. Við vorum að vinna á sérhæð, aðskilnar frá köllunum. Hrikalega frábær hópur sem elskar hvora aðra útaf lífinu. Fáum ekki nóg. Þetta nafn gáfu kallarnir okkur þar sem við vorum bara stelpur á hæðinni. Maður fýlaði sig stundum eins og í fangelsi, sem eina konan. Við Guðný og Tinna hittumst á Cultura og fengum okkur í hægri olnbogann..nei, bara áfengislaust í kvöld. Íris og Ragga eru einnig meðlimir. Ragga komst ekki en Íris ætlaði að mæta en lét ekki sjá sig og mér er sama hvað kom uppá..risastór bóla á nefinu or what! This is not acceptable. Hún er samt svo mikið rassgat að það gæti velverið að hún fái okkur allar til að hlæja aftur.Það er alltaf ótrúlega gaman hjá okkur lessunum. Bara fun fun fun. Girls just wanna have fun..wanna have fun fun.Ó my god. Svona fréttir maður hlutina. Ég fór á bloggið hennar Írisar og viti menn? Ástæðan fyrir að hún mætti ekki er karlmaður! The crazy cow has a boyfriend! Uss.....lessurnar