Aldan er heitasti staðurinn á Seyðisfirði. Við Díana, Hjördís og Ýmir hittumst þar og skemmtum okkur meiriháttar. Tónlistin var ansi fjölbreytt enda voru allir með aðgang að græjunum og var því mixið ekkert voða pro en hvað veit gömul kelling um það. Kannski er þetta nýjasta tískan á Seyðis, að hlusta bara á 15 sek. af hverju lagi..ég meina, til hvers að hlusta á allt lagið þegar þú kannt það? Ég fór á barinn og ætlaði að fá mér kokteil en það var enginn í boði svo ég bjó bara til eitthvað rugl og the next thing i know þá er farið að selja drykkinn minn svo að ég fór og gaf honum nafnið SMS sem var sett upp á töflu og seldur eins og heitar lummur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli