Nú á maður ekki sjö dagana sæla, bara svona helgarnar he he. Nei, Sandra hættu þessu!!! Allt stefnir í að ég þurfi að þurrka mig upp þar sem maður er að verða eins og brjálaður unglingur eða útbrunnið gamalmenni..pissfullt! Hverjum finnst það aðlaðandi?? Einu myndirnar sem Nói Páll fær að sjá eru djamm-myndir, eða allt stefnir í það. Ég man enn hvar ég legg bílnum og svoleiðis þó svo að um daginn hafi ég verið langt frá því. Ég er nefnilega atvinnulaus og eins og atvinnuleysingjar kannast við, þá verður maður afskaplega heiladauður af því..hasshausar eru kannski svipaðir. Ég ákvað að gera eitthvað í því og gerast bissí. Heilinn hefur tekið stökk, minnið er að skána en með áfengi verður það bara vont og versnar.
Þetta var pæling dagsins.
föstudagur, apríl 29, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli