Ég, Gugga fóstra og Svava arkitekt fórum saman í kirkjuna og líka í veisluna. Bjarki mætti í veisluna og brá víst svolítið að sjá hversu drukknar við Gugga vorum orðnar..strax um 9..Brúðkaupið var alveg meiriháttar fallegt og virkilega flott. Þau giftu sig í Laugarnesskirkju á laugardeginum s.l. og voru svo með veislu í Kópavoginum eftir athöfnina..of course. Maður mátti búast við flottri tónlist en þessu bjóst ég ekki við. Þau voru með einhverja geimveru sem söng óhugnarlega vel Manni langaði bara að panta hann á staðnum fyrir brúðkaupið manns..árið 2025, ég meina so?! Enginn af okkur stelpunum kannaðist við þennan strák sem söng svona en það er ekki búið. Stelpa um 10 ára, nemandi Lindu, söng líka og Vá!! Rosalega er skrítið að sjá svona unga stelpu með svona mikla hæfileika svo er maður að reyna eitthvað og heldur að maður sé alveg ágætis söngvari..ojojojojoj segi ég bara og fer í söng-strike. Það minnisstæðast í þessu var sem sagt tónlistin og líka kjóllinn hennar Lindu sem var rosalega flottur og algjörlega sniðinn eftir hennar stíl. Líka verð ég að segja að það sé minnisstætt þegar maður sér svona ástfangið par gifta sig eftir 10 ára samband. Þau eiga 3 ára strák sem heitir Dagur og er algjört krútt.
Kvöldið átti heldur betur eftir að taka á sig mynd þar sem fylleríið varð æ meira og meira. Við stelpurnar fórum víst uppí ræðupúlt og sögðum nokkur orð um Lindu og að sjálfsögð þurfti ég að gera eitthvað meira og SÖNG brot úr lagi...guð minn góður..fyrir fullt af fólki sem ég þekki ekki rass, og svo fór ég með ljóð sem ég samdi á staðnum..undir áhrifum!
Þetta er ekki búið því kvöldið endaði með íkveikju á fæti Guðrúnar og hún endaði á Slysó með 1 og 2. stigs bruna og komin hálfa leið í bleiku skýin á Morfíni. Eitt verð ég að segja, það var FULLT TUNGL!!! I Blame it on the MOON. Ef það hefði verið sól hefði þetta aldrei gerst..

=
2 ummæli:
Ohh það er svo gaman í brúðkaupum, sérstaklega þegar maður þekkir brúðhjónin vel. Heyrðu gaman að þú hafir skemmt þér vel í köben því ég fékk þetta flotta sms frá þér kl. 7 um morguninn. Gaman að vakna við þetta ;) "Ég er uppí leifstöð að drekka brjór... CRAZEEEE" Þetta voru þín skilaboð.
Æ, ég sá að ég gleymdi að kvitta. Þetta er bara ég Guðný ofurlessa :) Hvernig væri að stefna á hitting??
Skrifa ummæli