laugardagur, apríl 09, 2005
Hræðilegt en æðislegt
Vinkona mín, hún Gugga, er að fara til Köben á miðvikudaginn og mig langar rosalega með henni en vegna fjárskorts var maður búinn að útiloka það. Í gær spurði Bjarki mig hvort ég ætlaði að fara og ???, ég fékk bara hnút í magann og missti andlitið. Þetta er alltaf svo lítið mál hjá honum. Alltaf verð ég jafn hissa á hvað Bjarki er ótrúlega sanngjarn í sér.."Bara gríptu tækifærið" og ég náttúrulega beint á netið..með semingi þar sem ég hef alltaf svo miklar áhyggjur af peningum, og allt kom fyrir ekki. Þessi helvítis íslensku flugfélög eru okrarar dauðans. Maður varð virkilega pisst. Það var laust í sömu vél og Gugga fer í en þá gat ég ekki bókað á netinu vegna einhverrar bilunar og svo daginn eftir var sætið farið þannig að ef ég vildi komast til Köben þurfti ég að fara degi seinna og borga 78 þús!!! Er ekki allt í lagi með þessa fávita?..til Köben??? Ég tjékkaði á Icelandexpress sem manni finnst vera vinur manns, þú veist, litla mannsins en nei, þeir eru bara dýrir líka. Mér er sama um stuttan fyrirvara, þetta er bjánalegt að þó svo að fyrirvarinn sé stuttur að þá sé hægt að hækka verðið 4x Ég meina, vélin fer hvort eð er. Afhverju hækka verðin þó fyrirvarinn sé stuttur, afhverju ekki bara sama verð? Plís ekki svara þessu þar sem ég veit að þetta er einfaldlega fjárkúgun, voða sniðugt bissness trick að því meiri sem þörfin er..stuttur fyrirvari, því auðveldara er að rukka meira fyrir farið, fock that shit!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Æ, þú ert ekkert smá óheppin. Þannig að þú ferð ekki til Köben. Hvað er málið með þessi flugfélög. Ég vissi þetta ekki að verðið hækki eftir hvað þú pantar með stuttum fyrirvara. Ég hélt að þeir vildu hafa vélarnar alltaf fullar og bjóða því hagstæðari fluggjöld.
Kv, Guðný
Skrifa ummæli