Ferðin var meiriháttar. Við stelpurnar lifðum eins og Madonnur, borðuðum the most amazing mat sem ég hef nokkurn tíman bragðað og skemmtum okkur frábærlega. Við vorum hinar 5 fræknu og allar í banastuði. Við gistum hjá vinkonu Guðrúnar, henni Hrund sem er í námi í Köben. Íbúðin var undirlögð þessa 5 daga sem ég var þarna og þetta var eins og í fangabúðum, það þurfti að skipuleggja sturtuferðir og alles. Það var mikið verslað og hemm, sumir meira en aðrir..Fórum í Krisjaníu og ég trúði ekki mínum eigin augum. Húsin og fólkið, vá! Rosalega var gaman að sjá þetta. Eitt verð ég að segja að allt í ferðinni var perfect, nema sá ótrúlegi hlutur að danir eru orðnir mjög miklir rasistar..og það á Íslendinga! Við lentum nokkru sinnum í ótrúlegum tilfellum, öll tengdust verslunum og afgreiðslustörfum. Auðvitað lét maður þetta ekki eyðileggja neitt en kom manni samt mjög á óvart.Til að sja fleiri myndir frá ferðinni, klikkið þá á myndasíðulinkinn minn hér til hliðar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli