miðvikudagur, apríl 06, 2005
Loksins varð Lessuhittingur
Mér er sönn ánægja að segja frá því að í kvöld varð eðalsamkoma okkar lessanna. Við erum hópur sem vorum að vinna á svokölluðu lessulofti í Vöruhótelinu sem er hluti af Eimskip batteríinu. Við vorum að vinna á sérhæð, aðskilnar frá köllunum. Hrikalega frábær hópur sem elskar hvora aðra útaf lífinu. Fáum ekki nóg. Þetta nafn gáfu kallarnir okkur þar sem við vorum bara stelpur á hæðinni. Maður fýlaði sig stundum eins og í fangelsi, sem eina konan. Við Guðný og Tinna hittumst á Cultura og fengum okkur í hægri olnbogann..nei, bara áfengislaust í kvöld. Íris og Ragga eru einnig meðlimir. Ragga komst ekki en Íris ætlaði að mæta en lét ekki sjá sig og mér er sama hvað kom uppá..risastór bóla á nefinu or what! This is not acceptable. Hún er samt svo mikið rassgat að það gæti velverið að hún fái okkur allar til að hlæja aftur.Það er alltaf ótrúlega gaman hjá okkur lessunum. Bara fun fun fun. Girls just wanna have fun..wanna have fun fun.Ó my god. Svona fréttir maður hlutina. Ég fór á bloggið hennar Írisar og viti menn? Ástæðan fyrir að hún mætti ekki er karlmaður! The crazy cow has a boyfriend! Uss.....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Já þetta var æðislega notalegt hjá okkur í gær. Verðum að gera þetta oftar. Það besta var að þú gast ekki slitið þig frá okkur þegar þú þurfti að fara heima leysa hann Bjarka af, hehehehe.
Það rættist nú eitthvað úr þessum myndum hjá þér ;) Love, Guðný
lame að hafa misst af þessu:( Plís! liklegt að ég færi að beila á ykkur útaf einhverjum karlpungi..;)
kv iris
Skrifa ummæli