laugardagur, apríl 30, 2005

Opinn dagur í leikskólanum í dag.

Við Bjarki og Nói mættum í leikskólann kl.11 að sjá hvað krakkarnir hafa verið að gera. Þetta var æðislega gaman. Allir foreldrarnir og börnin saman og fóstrurnar að segja manni hvað barnið manns væri ótrúlega duglegt og yndislegt, ekki leiðinlegt að heyra svona. Leikföngin voru sýnd, kallast Könnunarleikurinn, var sýnt video af þeim að leika sér með þessi leikföng. Var mjög áhugavert að sjá hvernig þau leika sér með hluti úr umhverfinu og finnst þetta rosalega spennandi, kóktappar, alls kyns hólkar af girni, tvinna, wc pappír o.s.frv. Þetta elska þau, svo var auðvitað boðið uppá veitingar og að lokum sungu öll börnin 3 lög. Það var algjör snilld að sjá þau, þau stóðu sig svo vel og voru greinilega búin að æfa þetta voða vel, alveg að springa úr stolti. Nói Páll söng ekki með, vildi það ekki. Hann er ekkert fyrir svona stand ups.

Mamma og Nói
Originally uploaded by Pensillinn.


Noi og Hrefna
Originally uploaded by Pensillinn.

Engin ummæli: