Það hefur ekki mikið verið bloggað núna. Bjarki kemur heim um miðnætti í kvöld og það verður voðalega gott að fá hann heim. Tíminn hefur samt flogið ótrúlega hratt. Það er eins og maður fyllist þvílíkri orku þegar maður hefur engan annan til að taka alla ábyrgðina. Ég hef komist að því á meðan Bjarki hefur verið úti að ég er alltof mikið að hengja mig á kallinn. Hvað er það??? Ég held hann verði ánægður með þá breytingu, að ég sé að gera eitthvað í því. Það er bara svo skrítið að þegar maður lifir svona góðu lífi verður maður bara dofinn og framkvæmdarlaus. Núna er súperman-treyjan skammt undan ef eitthvað svoleiðis fer að sýna sig. So..kiss kiss, Bjarki er að koma heim.
Þrúða kíkti í kaffi um 2 í dag og fór í búðir, Nói Páll sefur einmitt á þeim tíma svo ég hitti hana bara aðeins seinna. Við ætlum að skoða í búðir og láta okkur dreyma.
laugardagur, maí 28, 2005
Föstudagurinn
Fór í ræktina um 9, málaði til 2, hitti Kötu Rokk á Apótekinu. Heilmikið chattað og borðaði súpergóða súpu og ógeðslega gott brauð með ógeðslega góðu hvítlauks pestói, beit örugglega fingur af þjónustustúlkunni. Hitti svo Hrönnsu systur og vin hennar Stebba, sem reyndist vera sá Stebbi sem er besti vinur bróður Bjarka og vann einnig með mér hjá Eimskip um tíma, á Austurvelli þar sem við sátum í sólinni og drukkum enn meira kaffi. Fór svo og þreif bílinn að utan, hef einu sinni áður skolað af honum síðan við keyptum hann, segi ekki hvað er langt síðan. Vann í heimasíðunni minni um kvöldið og drakk 1 bjór og hlustaði á tónlist.Þrúða klikkaða vinkona mín sem býr á Akureyri, dont´know why, kemur í bæinn í dag með börnin sín 2 og klikkaða manninn sinn. Við ætlum að gera eitthvað húsmæðralegt saman á morgun.
þriðjudagur, maí 24, 2005
Istanbúl
Bjarki fór klukkan 5 í morgun ásamt pabba sínum, bróður og afa til Istanbúl með stoppi í London. Þetta er 12 tíma ferðalag.
Hann er að fara á leikinn á morgun, Liverpool-AC Milan og er bara spenntur. Þetta er risa pakki og svo er landið pínu sceary og því var maður í fyrstu svolítið stressaður með þetta en svo rankar maður við sér eftir kastið og sér að lífið er bara ekki svona,
svona hættu Sandra, vertu ekki að lemja hausnum í klósettskálina, hættu hættu. Já, svona var það nákvæmlega.
Nú er Bjarki á strippbúllu með afa sínum sem er mjög mikið fyrir stór brjóst svo ég fyrirgef honum Bjarka mínum þar sem hann er að gera þetta fyrir afa sinn og hann er sá sem bíður þeim öllum í þessa ferð.
Bjarki og Böðvar bróðir hans verða eftir á fimmtudeginum í London en feðgarnir, Gunnar og Böðvar halda heim á leið.
Vonandi verður bara Liverpool sigur svo allt fari eins og í ævintýri.

Eurovision partýið á laugard.kvöldinu
Þrátt fyrir tapið okkar í blessaða eoruvisioninu þá var haldið teiti hjá Guðnýju í Árbænum. Það var fylgst með keppninni, með öðru auganu, mín augu fóru eiginlega bara í glasið þar sem ég er nú officially orðin anti-eurovision manneskja. Ég fékk mig fullsadda af þessu rugli..pólitík pólitík pólitík og ekkert annað. Mér finnst líka frekar lame þegar maður getur ekki hringt inn og kosið sem hlýtur að þýða að mjög margir gátu ekki kosið og sennilega hafa þeir sem héldu keppnina fixað það þannig að norðurlöndin gætu hreinlega ekki náð í gegn.. he he, how sad am I ?? Kvöldið var bara fínt og endaði vel. Fórum öll í 3 leigubílum, sem voru mjög lengi að koma. Íris og Tinna fóru á karlaslóðir en við Gugga, Guðný, Ingibjörn og félagi fórum á Dillon sem var bara disaster, síðan á Ölstofuna þar sem við Gugga kíktum inn en Guðný og Co fóru eitthvað annað.

fimmtudagur, maí 19, 2005
Eurovision 2005

Maður er orðinn svoooooo spenntur, íhííhíííííhíí. Kvöldið verður allsvakalegt, svo spennandi og hvað þá laugardagskvöldið.
Ég hef horft á alla Eurovison þættina og elska þá svo mikið. Mér finnst þau öll svo frábær í þættinum og okkar maður, Eiki, er auðvitað langsvalastur af þeim. Ég lifi mig þvílíkt inní þættina og hlæ og froðufelli af gleði og hneikslan, bara allur pakkinn. Það er sennilega bara gott að ég sé ein í kvöld,,ekki með öðrum eurovision aðdáendum. Bjarki tekur þessu sem best hann má, enda gerir hann sér grein fyrir að hann er með geðsjúkri konu.
Sveitaferðin um daginn
Við Nói Páll fórum í sveitaferð með leikskólanum hans. Var rosa gaman. Hann er greinilega mjög passasamur enda vildi hann ekki koma nálægt dýrum sem voru stærri en hann sjálfur, mjög clever. Fyrst vildi hann ekkert fara innfyrir fjóssins dyr en um leið og ég fann dýr sem var lítið og sætt, eins og hvolpana breyttist hann í hinn mesta ljúfling.

Hlaupabóla í mínum húsum!!!
Nú hefur maður aldeilis lent í því. Nói Páll er kominn með hlaupabóluna. Ég finn svo til með honum, þó svo hann sé voða rólegur og góður, þá finnst mér þetta svo agalegt. Þetta er svo ömurlegt, að klæja útum allt og svo tekur þetta svo langan tíma að fara. Hann borðar alla vega vel og líður greinilega ekkert sem verst. Bólurnar eru svo ógeðslegar og svo verður það enn verra þegar bólurnar springa. Það er líka bara gott að þetta sé búið, mjög gott. Mér finnst svo ótrúlegt hvað hann er rólegur yfir þessu öllu saman..ekki mín gen þar á ferð.

fimmtudagur, maí 05, 2005
Komin á skólabekkinn
Allt getur nú gerst og nú fékk ég aldeilis tækifæri. Ég komst ókeypis á vefsíðunámskeið hjá Tölvuskólanum þekking, á vegum atvinnumiðlunarinnar. Mér finnst svo gaman að ég bíð ofurspennt eftir næsta tíma. Ég er þessi óþolandi nemandi sem vill læra þetta alveg rétt og sleppi kennaranum ekki áfram og svo er ég svo upptjúnuð af áhuga, það heyrist nokkuð oft frá honum.."jæja, er ekki bara að koma kaffi"..he he. Hann fær að líða fyrir atvinnuleysingjana í landinu. Þetta er rosalega skemmtilegt. Mig langaði alltaf að læra þetta en grunaði ekki að mér þætti þetta svona rosalega skemmtilegt.
Nú vonar maður bara að maður haldi sig fókuseraða á þetta og ekkert bullshit! Oft finnst mér hálfsorglegt hvað maður hefur það gott, því mín kenning er sú að þeir sem troða sér best á framfæri eru þeir sem hafa mestu þörfina. Bjarki verður bara að fara berja mig og hætta að gefa mér að éta, þá kannski fer maður out there og sigrar heiminn með myndlistina og ljósmyndunina og bara allt þetta pokadæmi.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)