laugardagur, maí 28, 2005

Bjarki kemur heim í kvöld

Það hefur ekki mikið verið bloggað núna. Bjarki kemur heim um miðnætti í kvöld og það verður voðalega gott að fá hann heim. Tíminn hefur samt flogið ótrúlega hratt. Það er eins og maður fyllist þvílíkri orku þegar maður hefur engan annan til að taka alla ábyrgðina. Ég hef komist að því á meðan Bjarki hefur verið úti að ég er alltof mikið að hengja mig á kallinn. Hvað er það??? Ég held hann verði ánægður með þá breytingu, að ég sé að gera eitthvað í því. Það er bara svo skrítið að þegar maður lifir svona góðu lífi verður maður bara dofinn og framkvæmdarlaus. Núna er súperman-treyjan skammt undan ef eitthvað svoleiðis fer að sýna sig. So..kiss kiss, Bjarki er að koma heim.
Þrúða kíkti í kaffi um 2 í dag og fór í búðir, Nói Páll sefur einmitt á þeim tíma svo ég hitti hana bara aðeins seinna. Við ætlum að skoða í búðir og láta okkur dreyma.

Engin ummæli: