Þrátt fyrir tapið okkar í blessaða eoruvisioninu þá var haldið teiti hjá Guðnýju í Árbænum. Það var fylgst með keppninni, með öðru auganu, mín augu fóru eiginlega bara í glasið þar sem ég er nú officially orðin anti-eurovision manneskja. Ég fékk mig fullsadda af þessu rugli..pólitík pólitík pólitík og ekkert annað. Mér finnst líka frekar lame þegar maður getur ekki hringt inn og kosið sem hlýtur að þýða að mjög margir gátu ekki kosið og sennilega hafa þeir sem héldu keppnina fixað það þannig að norðurlöndin gætu hreinlega ekki náð í gegn.. he he, how sad am I ?? Kvöldið var bara fínt og endaði vel. Fórum öll í 3 leigubílum, sem voru mjög lengi að koma. Íris og Tinna fóru á karlaslóðir en við Gugga, Guðný, Ingibjörn og félagi fórum á Dillon sem var bara disaster, síðan á Ölstofuna þar sem við Gugga kíktum inn en Guðný og Co fóru eitthvað annað.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli