fimmtudagur, maí 19, 2005

Hlaupabóla í mínum húsum!!!

Nú hefur maður aldeilis lent í því. Nói Páll er kominn með hlaupabóluna. Ég finn svo til með honum, þó svo hann sé voða rólegur og góður, þá finnst mér þetta svo agalegt. Þetta er svo ömurlegt, að klæja útum allt og svo tekur þetta svo langan tíma að fara. Hann borðar alla vega vel og líður greinilega ekkert sem verst. Bólurnar eru svo ógeðslegar og svo verður það enn verra þegar bólurnar springa. Það er líka bara gott að þetta sé búið, mjög gott. Mér finnst svo ótrúlegt hvað hann er rólegur yfir þessu öllu saman..ekki mín gen þar á ferð.Nói PállNói Pál

Engin ummæli: