Allt getur nú gerst og nú fékk ég aldeilis tækifæri. Ég komst ókeypis á vefsíðunámskeið hjá Tölvuskólanum þekking, á vegum atvinnumiðlunarinnar. Mér finnst svo gaman að ég bíð ofurspennt eftir næsta tíma. Ég er þessi óþolandi nemandi sem vill læra þetta alveg rétt og sleppi kennaranum ekki áfram og svo er ég svo upptjúnuð af áhuga, það heyrist nokkuð oft frá honum.."jæja, er ekki bara að koma kaffi"..he he. Hann fær að líða fyrir atvinnuleysingjana í landinu. Þetta er rosalega skemmtilegt. Mig langaði alltaf að læra þetta en grunaði ekki að mér þætti þetta svona rosalega skemmtilegt.
Nú vonar maður bara að maður haldi sig fókuseraða á þetta og ekkert bullshit! Oft finnst mér hálfsorglegt hvað maður hefur það gott, því mín kenning er sú að þeir sem troða sér best á framfæri eru þeir sem hafa mestu þörfina. Bjarki verður bara að fara berja mig og hætta að gefa mér að éta, þá kannski fer maður out there og sigrar heiminn með myndlistina og ljósmyndunina og bara allt þetta pokadæmi.
fimmtudagur, maí 05, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
flott hjá þér Sandra:)
hehe ég sé þig of vel fyrir mér, iðandi í stólnum af spenningi hehehehe...
kv.Irish
Geggjað Sandra,
Það er líka svo ógeðslega gaman að læra eitthvað sem maður hefur brennandi áhuga á. Sammála Írisi með iðið ;) þú ert örugglega að kaffæra kennaranum, en hann fær borgað fyrir að láta bögga sig :)
Skrifa ummæli