fimmtudagur, júní 30, 2005

Don´t mess with Bubba

Svona áður en ég læt gusuna koma um mitt eigið líf, þá las ég hjá vinkonu minni Árdízi, um commentið hennar á grein Hér og nú um Brynju spólgröðu og hennar mikla X. Headlinið í Hér & Nú fór nú strax mjög í taugarnar á mér, fannst þetta algjör óþarfi að hafa hana svona rosalega ómerkilega og ódýra. Fyrir utan það þá virkaði hún öfugt á mann í sambandi við að freistast til að kaupa blaðið, þá tók ég stóran sveig framhjá því. Bubbi er líka þannig maður, þú messar ekkert í Bubba.
Ég sá einmitt viðtalið við hann og fannst hvert einasta orð sem hann sagði vera 100% og algjörlega hitta í mark, bara gat ekki verið meira sammála honum en annað er kannski með sannleikann þeirra á milli sem mér er í raun slétt sama um.
Það er bara það að fólk geti gert svona, komið fram og sagt, "heyrðu, reyndu ekki einu sinni að þykjast vita eitthvað um mig", og láta þessar alætur éta allt ofaní sig aftur! Fólk er oft svo furðulegt, hreinlega nærist á óförum annarra.

Engin ummæli: