fimmtudagur, júní 30, 2005

Fyrsta einkasýningin verður á Sólon laugard. 2.júlí - 30. júlí


Fre
Originally uploaded by Pensillinn.


Tíminn er upprunninn, fyrsta einkasýningin mín verður á laugardaginn...eftir 2 daga á Sólon downtown Reykjavík.
Opnunin verður frá 5-7 og hvet ég alla sem geta, að mæta og sjá það nýjasta nýtt í málverkinu hjá mér. Ég stefni að því að halda smá boð-teiti eftir opnunina eða bara reyna að fá fólk til að hittast á einhverjum stað, kemur allt í ljós. Ótrúlegt en satt þá er bara allt reddí fyrir sýninguna og ég get sem betur fer slappað af og notið þess í botn að hlusta á mínúturnar líða.
Ég var að hugsa um að fara útí hvernig ég var hérna fyrir mánuði..óþekkjanleg í útliti af stressi og ákafa. Ég held að sumir hefði bara ekki þekkt mig í sjón he he.

2 ummæli:

Little miss mohawk sagði...

Æðislegt að koma til þín :) og frábær sýning !!!

Beta sagði...

Hæ dúllan mín og til hamingju með fyrstu einkasýninguna þína.
Ég missti af opnuninni (en þú auðvitað tókst eftir því að næturdrottninguna vantaði var þaggi?) Ég er hinsvegar að sjálfsögðu búin að fara og sjá sýninguna þína og þykir hún brill.
Titilverkið:Traffík er svo gjössamlega frábært alveg eins og þú! It's mine it's mine ,mine,mine,mine..me,me,me,me..
hlakka til að sjá þig prinsessa!
kveðja Beta