MMMM, yndislegt veður núna. Ég gæti staðið á svölunum bara og þóttst vera að skoða fuglana eða eitthvað bara til að vera úti í góða veðrinu. Ég er líka með genið frá pabba mínum sem láta mig fara í alsælu þegar ég finn útilykt og Bjarka finnst það ansi yfirþyrmandi að sjá mig stynja hástöfum yfir lyktinni af þvottinum og fötum sem hafa verið úti. Rúmfötin eru einmitt eitt svona atriði, ég ræðst á sængina mína og koddann, byllti mér og drekki mér í þeim eins og maður sé að berjast við einhvern uppí rúmi! Gaman fyrir Bjarka að ganga inn á svona uppákomur. Á sumrin breytist maður líka í manneskju sem heldur að hún sé heimsveldi og heimurinn sé fransbrauð sem hægt sé að hakka í sig óstöðvandi, svo er það korkí-brosið, alltaf eitthvað að
brosa útí bláinn eða að maður er svo svalur að það hlýtur að vera skelfilegt fyrir fólk að sjá mann. Keyrandi í bílnum með "útvarpið" í botni, flugstjóragleraugun og Billy Idol vörina uppí loft...Oh my god, eins og Nói Páll segir stundum.
mánudagur, júní 13, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli