laugardagur, júlí 30, 2005

Sólarbombusumarfríið

Það á ekki að vera hægt að vera svona heppinn. Í fyrra fengum við Bjarki og fjölskylda ótrúlegt veður og vorum ekki að trúa því hversu gott veður var á hverjum einasta degi þegar við vöknuðum. Maður hoppaði beint í bikínið sitt og útí heita pottinn en núna í ár var það svo gott að eftir 3 fyrstu dagana var maður farinn að flýja inn ansi oft til að hvíla sig frá hitanum. Við vorum á Flúðum og einmitt á okkar 3.ja degi var hitametið þar. Sumarfríið var algjörlega frábært og húsið sem við vorum í var rosalega stórt og flott. Vorum með heitan pott..ofcourse, risastóra verönd og stóran garð. Húsið var 130 fm og því vel rúmgott fyrir gestina og engan skorti neitt. Stutt frá okkur var grænmetisræktun og dýrðleg jarðarberjaræktun. Við keyptum einmitt nokkrar öskjur af jarðarberjum hjá bóndanum og mmmmmm hvað þau voru geggjaðslega góð. Lífið verður bara ekki betra en þetta. Myndirnar sem við tókum þarna tala sínu máli.
784637058

fimmtudagur, júlí 28, 2005

Myndablogg


Nù er sòlarlaus dagur ì 1x ì 6 daga

Myndina sendi ég

miðvikudagur, júlí 27, 2005

Myndablogg


Kl.20:30

Myndina sendi ég

laugardagur, júlí 23, 2005

Myndablogg


Sjùkt veður. Kl. er 20:00, the photo speaks for itself

Myndina sendi ég

föstudagur, júlí 22, 2005

Myndablogg



Myndina sendi ég

Myndablogg


Hì hì, nòi à leiðinni ì sumarbùstad à flùdum.

Myndina sendi ég

þriðjudagur, júlí 19, 2005

Myndablogg


Elsa amma og nòi pàll

Myndina sendi ég

BG


BG
Originally uploaded by Pensillinn.
Bjarki á Skólabrú.
Smá photoshop fikt:)

mánudagur, júlí 18, 2005

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by Pensillinn.
Trash on my balcony



sunnudagur, júlí 17, 2005

Laugardagurinn 16. júlí

Fyrsta opnunin mín sem sýningarstjóri gekk mjög vel. Engin stórslys urðu nema kannski að María lenti í að myndin sem hún lét setja fyrir sig á álplötu fyrir sýninguna var of stór. Enginn staður var opinn þar sem hún gat látið skera myndina í rétta stærð. Hún varð síðan mjög heppin þegar hún fór í eitt fyrirtækið, sem var lokað, bankaði á gluggann þar og hitti þá á 1 mann sem var þar rétt að skjótast og fékk að skera myndina hjá honum. Sýningin kom mjög vel út og nú er bara að vona að sýningin vekji athyggli og að eitthvað seljist. María, listamaðurinn, á vinkonu sem heitir Sandra og er líka í ljósmyndun. Þær saman sóttu um sýningu á Thorvaldsen fyrir nokkrum mánuðum og þegar ég sendi vinkonu Maríu mail, í upphafi okkar samskipta, þá hélt María að þetta væri meil til hennar og Söndru vinkonu sinnar. Lítill heimur og ótrúleg tilviljun. María bjó líka fyrir ofan Guggu vinkonu í góðan tíma og svo útskrifaðist ég með mömmu hennar úr L.H.Í 2002 Þannig að þemað fyrir mér við þessa minningu mun verða "Sandra María" og fullt af "Maríum". Fyndið líka, við höfum allar stundað og höfum áhuga á ljósmyndun, ég, María og Sandra! Um kvöldið fórum við Bjarki út að borða á Skólabrú og ég vil bara lýsa því hér með yfir að ef einhver vill ganga í augun á einhverjum eða bara einfaldlega fara til himnaríkis í eitt kvöld þá ætti sú manneskja að fara á Skólabrú. Geggjuð þjónusta og geggjaður matur og staðurinn mjög notalegur.


Originally uploaded by Pensillinn.


Bjarki og ég á Skólabrú
Originally uploaded by Pensillinn.

laugardagur, júlí 16, 2005

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by Pensillinn.
Bjarki ad pósa fyrir
nýja símann minn. Þetta er 1. símsenda bloggid mitt.
Sandra hérna orðin gríðarlega hátæknivædd.

fimmtudagur, júlí 14, 2005

Góður dagur í dag

Þessi dagur var hreint út sagt perfect. Byrjaði daginn á að fara í ræktina. Fór svo á Thorvaldsen og bauð Guggu vinkonu uppá lunch og fengum okkur hvítvín með matnum!!! ÍÍÍÍhhh, það var æði að gera svona á fimmtudegi og í svona veðri. That´s what I call a lifestyle. Það sem síðan toppar kvöldið er THE DESPERATE HOUSWIFES. Hlakka svo til hlakka svo til, bara elska þessa þætti. Ég er alveg eins og mamma mín þegar ég horfi á þá: "nei ekki segja þetta"! "Hey djöfuls rugl, er hún alveg rugluð"?!! Lifi mig totally inn í þáttinn.desperate-housewifes-02

mánudagur, júlí 11, 2005

Nýja vinnan

Nú er maður kominn af stað í nýja starfinu. Í dag hitti ég fyrsta listamanninn sem sýnir á Thorvaldsen Bar undir minni supervision. Hún heitir María og er þrusu ljósmyndari, hæfileikarík og mjög aktív..sem kemur oft fólki lengra en hæfileikarnir einir saman. Opnunin er núna á laugardaginn. Við hengjum upp verkin snemma samdægurs. Ég verð auðvitað á opnuninni, brosandi í mínu fínasta pússi og skenki öldreitli í staup fyrir sýningargesti og listamann. Það er því bara allt að gerast og spennandi helgi framundan. Skál fyrir því.

sunnudagur, júlí 10, 2005

Þegar eitthvað basic klikkar

imagesMaður er illa háður þeim hversdagslegu þægindum sem maður hefur vanist. Dæmið hjá mér er þvottavélin!! Ég hef alltaf elskað að þvo þvottinn minn og þefa af honum þegar hann er nýþveginn. Um daginn gaf vélin sig, flæddi vatn út um allt. Bjarki lenti sem betur fer í þessu he he, ég var fyrir austan. Næstum 2 vikum seinna erum við komin með aðra vél, notaða, sem við keyptum af manni út í bæ sem hefur eitthvað passion fyrir þvottavélum. Það sem maður var glaður og spenntur yfir að geta loksins þvegið en þá lekur sú "nýja" bara ennþá meira og í þokkabót snarrugluð vél, had it´s own will. Þvottavélakallinn kom þá með aðra sem stendur sig svona líka PRRRRRÍÍÍÍÐILEGA, þvotturinn er ótrúlega hreinn og nú sér maður að sú gamla var nú bara ekkert að þvo þvottinn neitt sérstaklega vel. Ég man mig klæjaði oft svo út um allt...skipti einmitt um þvottaefni og þetta týpíska. Þá var þetta bara vélin sem skolaði ekki þvottinn nógu vel.

Heimildarmynd um hetjur hvunndagsins

12Hlutirnir taka sinn tíma. Hugmyndir fæðast og svo er að framkvæma þá sem auðvitað tekur sinn tíma og skipulagningu. Sumar hugmyndir verða til og deyja..aðrar bara neita að deyja og maður getur ekki hætt að hugsa um þær. Working class hero er eitthvað sem neitar að deyja hjá okkur Bjarka þar sem t.d. foreldrar mínir eru sniðnir úr þannig umhverfi (bæði unnið við sjómennskuna alla ævi). Why not,,,við Bjarki höfum alla kunnáttu og græjur til að gera svona þátt. Það er því ákveðið, the show is going to go on..

laugardagur, júlí 09, 2005

Working Class hero

lazy sundayFramtakssemi...eitthvað sem ellin ætti að kenna manni. Kyrrstaða er sama og dauði sagði afi Bjarka míns.
Það er einn sá framtakssamasti sem ég hef kynnst. Hann sér tækifæri og peninga í öllu. Það vantar í mann survivor spiritið.
Er hinn alvöru verkamaður dauður? Nú virðast svo margir fá allt uppí hendurnar þar sem foreldrar og aðstandendur ala miklu lengur upp "börnin" sín og þá vill þannig fólk oft treysta á að þeim verði reddað þegar þau hafa fokkað upp bigtime! Er ég kannski bara að íkja? Auðvitað eru þarna úti hetjur hversdagsleikans..kannski bara öðruvísi hetjur. Hetjur sem sigrast á stressinu og pressunni í nútímasamfélaginu? Hetjur sem horfa framhjá öllum hyllingunum og tálbeitunum. Hetjur sem neita að vera fórnarlamb ofsaofbeldi tilverunnar.

föstudagur, júlí 08, 2005

Hryðjuverkadjöfulsbull

Hey eitt hérna, ég er alls ekki sátt við að ég fái ekki það sem ég vil hummm?? Kannski ætti ég að fara og sprengja upp
Glæsibæ, fíla það ekki þegar ég fæ mínu ekki fram! Ég er löngu hætt að botna hvað þessir glæpamenn sem vita sennilega ekkert hver málstaðurinn er, eru að pæla og hverju þeir haldi að þeir nái fram með að drepa blásaklaust fólk sem fellur það illa í kramið hjá öllum að andúðin á þeim eykst bara. Hver vill líka láta hryðjuverkamann fá það sem hann vill? Það er eins og að rétta fjöldamorðingja hníf. Ég næ því heldur ekki að þegar þú ert manneskja sem drepur einhvern þá er þér fleygt inn í jailið með hrotta og skömm en ef þú titlar þig sem hryðjuverkamann þá er bara ekki hægt að negla þig. Þú getur bara drepið og drepið. Það sem gerðist í London er svo ótrúlegt en samt eitthvað sem maður hefur búist við eftir það sem á undan hefur gengið. Núna eru 49 látnir eftir London hryðjuverkin. Það sem gerðist í N.Y og á spáni..minnir mig í Madrid var náttúrulega miklu hrottalegra en það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá Bush í sjónvarpinu þegar þetta gerðist í London var að hann hefði staðið á bakvið þetta til að Evrópa myndi sýna sér meiri stuðning í stríði sínu í Írak..Why not, the man has no brain!