sunnudagur, júlí 10, 2005

Þegar eitthvað basic klikkar

imagesMaður er illa háður þeim hversdagslegu þægindum sem maður hefur vanist. Dæmið hjá mér er þvottavélin!! Ég hef alltaf elskað að þvo þvottinn minn og þefa af honum þegar hann er nýþveginn. Um daginn gaf vélin sig, flæddi vatn út um allt. Bjarki lenti sem betur fer í þessu he he, ég var fyrir austan. Næstum 2 vikum seinna erum við komin með aðra vél, notaða, sem við keyptum af manni út í bæ sem hefur eitthvað passion fyrir þvottavélum. Það sem maður var glaður og spenntur yfir að geta loksins þvegið en þá lekur sú "nýja" bara ennþá meira og í þokkabót snarrugluð vél, had it´s own will. Þvottavélakallinn kom þá með aðra sem stendur sig svona líka PRRRRRÍÍÍÍÐILEGA, þvotturinn er ótrúlega hreinn og nú sér maður að sú gamla var nú bara ekkert að þvo þvottinn neitt sérstaklega vel. Ég man mig klæjaði oft svo út um allt...skipti einmitt um þvottaefni og þetta týpíska. Þá var þetta bara vélin sem skolaði ekki þvottinn nógu vel.

Engin ummæli: