Hey eitt hérna, ég er alls ekki sátt við að ég fái ekki það sem ég vil hummm?? Kannski ætti ég að fara og sprengja upp
Glæsibæ, fíla það ekki þegar ég fæ mínu ekki fram! Ég er löngu hætt að botna hvað þessir glæpamenn sem vita sennilega ekkert hver málstaðurinn er, eru að pæla og hverju þeir haldi að þeir nái fram með að drepa blásaklaust fólk sem fellur það illa í kramið hjá öllum að andúðin á þeim eykst bara. Hver vill líka láta hryðjuverkamann fá það sem hann vill? Það er eins og að rétta fjöldamorðingja hníf. Ég næ því heldur ekki að þegar þú ert manneskja sem drepur einhvern þá er þér fleygt inn í jailið með hrotta og skömm en ef þú titlar þig sem hryðjuverkamann þá er bara ekki hægt að negla þig. Þú getur bara drepið og drepið. Það sem gerðist í London er svo ótrúlegt en samt eitthvað sem maður hefur búist við eftir það sem á undan hefur gengið. Núna eru 49 látnir eftir London hryðjuverkin. Það sem gerðist í N.Y og á spáni..minnir mig í Madrid var náttúrulega miklu hrottalegra en það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá Bush í sjónvarpinu þegar þetta gerðist í London var að hann hefði staðið á bakvið þetta til að Evrópa myndi sýna sér meiri stuðning í stríði sínu í Írak..Why not, the man has no brain!
föstudagur, júlí 08, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli