sunnudagur, júlí 17, 2005

Laugardagurinn 16. júlí

Fyrsta opnunin mín sem sýningarstjóri gekk mjög vel. Engin stórslys urðu nema kannski að María lenti í að myndin sem hún lét setja fyrir sig á álplötu fyrir sýninguna var of stór. Enginn staður var opinn þar sem hún gat látið skera myndina í rétta stærð. Hún varð síðan mjög heppin þegar hún fór í eitt fyrirtækið, sem var lokað, bankaði á gluggann þar og hitti þá á 1 mann sem var þar rétt að skjótast og fékk að skera myndina hjá honum. Sýningin kom mjög vel út og nú er bara að vona að sýningin vekji athyggli og að eitthvað seljist. María, listamaðurinn, á vinkonu sem heitir Sandra og er líka í ljósmyndun. Þær saman sóttu um sýningu á Thorvaldsen fyrir nokkrum mánuðum og þegar ég sendi vinkonu Maríu mail, í upphafi okkar samskipta, þá hélt María að þetta væri meil til hennar og Söndru vinkonu sinnar. Lítill heimur og ótrúleg tilviljun. María bjó líka fyrir ofan Guggu vinkonu í góðan tíma og svo útskrifaðist ég með mömmu hennar úr L.H.Í 2002 Þannig að þemað fyrir mér við þessa minningu mun verða "Sandra María" og fullt af "Maríum". Fyndið líka, við höfum allar stundað og höfum áhuga á ljósmyndun, ég, María og Sandra! Um kvöldið fórum við Bjarki út að borða á Skólabrú og ég vil bara lýsa því hér með yfir að ef einhver vill ganga í augun á einhverjum eða bara einfaldlega fara til himnaríkis í eitt kvöld þá ætti sú manneskja að fara á Skólabrú. Geggjuð þjónusta og geggjaður matur og staðurinn mjög notalegur.


Originally uploaded by Pensillinn.


Bjarki og ég á Skólabrú
Originally uploaded by Pensillinn.

Engin ummæli: