mánudagur, júlí 11, 2005
Nýja vinnan
Nú er maður kominn af stað í nýja starfinu. Í dag hitti ég fyrsta listamanninn sem sýnir á Thorvaldsen Bar undir minni supervision. Hún heitir María og er þrusu ljósmyndari, hæfileikarík og mjög aktív..sem kemur oft fólki lengra en hæfileikarnir einir saman. Opnunin er núna á laugardaginn. Við hengjum upp verkin snemma samdægurs. Ég verð auðvitað á opnuninni, brosandi í mínu fínasta pússi og skenki öldreitli í staup fyrir sýningargesti og listamann. Það er því bara allt að gerast og spennandi helgi framundan. Skál fyrir því.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli