Það á ekki að vera hægt að vera svona heppinn. Í fyrra fengum við Bjarki og fjölskylda ótrúlegt veður og vorum ekki að trúa því hversu gott veður var á hverjum einasta degi þegar við vöknuðum. Maður hoppaði beint í bikínið sitt og útí heita pottinn en núna í ár var það svo gott að eftir 3 fyrstu dagana var maður farinn að flýja inn ansi oft til að hvíla sig frá hitanum. Við vorum á Flúðum og einmitt á okkar 3.ja degi var hitametið þar. Sumarfríið var algjörlega frábært og húsið sem við vorum í var rosalega stórt og flott. Vorum með heitan pott..ofcourse, risastóra verönd og stóran garð. Húsið var 130 fm og því vel rúmgott fyrir gestina og engan skorti neitt. Stutt frá okkur var grænmetisræktun og dýrðleg jarðarberjaræktun. Við keyptum einmitt nokkrar öskjur af jarðarberjum hjá bóndanum og mmmmmm hvað þau voru geggjaðslega góð. Lífið verður bara ekki betra en þetta. Myndirnar sem við tókum þarna tala sínu máli.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli