laugardagur, júlí 09, 2005

Working Class hero

lazy sundayFramtakssemi...eitthvað sem ellin ætti að kenna manni. Kyrrstaða er sama og dauði sagði afi Bjarka míns.
Það er einn sá framtakssamasti sem ég hef kynnst. Hann sér tækifæri og peninga í öllu. Það vantar í mann survivor spiritið.
Er hinn alvöru verkamaður dauður? Nú virðast svo margir fá allt uppí hendurnar þar sem foreldrar og aðstandendur ala miklu lengur upp "börnin" sín og þá vill þannig fólk oft treysta á að þeim verði reddað þegar þau hafa fokkað upp bigtime! Er ég kannski bara að íkja? Auðvitað eru þarna úti hetjur hversdagsleikans..kannski bara öðruvísi hetjur. Hetjur sem sigrast á stressinu og pressunni í nútímasamfélaginu? Hetjur sem horfa framhjá öllum hyllingunum og tálbeitunum. Hetjur sem neita að vera fórnarlamb ofsaofbeldi tilverunnar.

Engin ummæli: