Rosalega er þetta fallegur bær, tala nú ekki um sumrin. Það er víst kominn vegur uppá Bjólf svo maður getur keyrt...á jeppa uppá fjallið og dísús kræst hvað það er rosalegt að horfa svona yfir bæinn. Þetta er engin smá hæð, ekki fyrir lofthrædda. Við vorum í 4 daga, fengum 1 sólardag, spiluðum 2x gólf. Pabbi fór með okkur í annað skiptið og ég skemmti mér konunglega að horfa á gamla sjómanninn, með risa krumlurnar sínar, dúndra í kúluna. Það er sérstaklega gaman að sjá vindhöggin hjá honum. Það er vel hægt að hugsa sér að búa útá landi, hef reyndar mikið pælt í því en þegar maður hefur verið þarna í smá tíma þá tekur maður eftir gríðarlegum mun á allri þjónustu o.þ.h. Við Bjarki fórum í 3 búðir til að fá remolaði, 2 á Egilsstöðum og enduðum svo í kaupfélaginu á Seyðis. Fórum í 2 búðir til að fá pulsubrauð og verðið er crazy-hátt. Það er ein sjoppa á Seyðisfirði og við ætluðum að panta franskar með matnum en þá voru franskarnar búnar! Þeim datt ekki einu sinni í hug að redda því með að versla bráðabirgða í kaupfélaginu eða fara í bónus á Egilsstöðum svo hægt væri að bjóða uppá franskar þar til næsta sending kæmi? Þetta er auðvitað eitthvað sem maður venst með tímanum, þjónustustandardinn í Rvk er greinilega orðinn svakalegur fyrst maður er orðinn svona. Smella saman puttunum og hlutirnir gerast svona. Á seyðis við norrönu
Engin ummæli:
Skrifa ummæli