föstudagur, ágúst 19, 2005

Sonic Youth in Iceland

Geggjað skrítið að sjá þau á sviði, nokkrum metrum fyrir framan mann, sem betur fer var maður ekki að drekku..uss. Mikið er ég ánægð að hafa farið á tónleikana á Nasa. Ég fór fyrra kvöldið, þ.e.a.s. á þriðjud.kvöldinu. Tónleikarnir byrjuðu vel, þau sýndu frábæra takta um tíma en svo dalaði þetta mikið hjá þeim og við Bjarki vorum á einu máli um það að þau væru að reyna að svæfa liðið svona síðasta hálfa tímann. Við fórum þegar þau voru nánast farin að láta rafmagnið spila sína eigin tónlist, ekkert að gerast og engir stjörnutaktar á ferð. Þetta var samt alveg þess virði þar sem þau flippuðu líka, hentu sér í krádið og slepptu sér þokkalega. Áttu mjög fyndnar og skemmtilegar setningar og samræður, alltaf gaman að spjalli frá tónlistarmeðlimunum, tala nú ekki um þegar þeir eru fyndnir. Skemmtileg grúppa og maður fékk það á tilfinninguna að þetta væri svona band þar sem allir væru mjög samheldnir. Thurston er hirðfíflið í hópnum og hann sannaði það alveg á tónleikunum.

sonic-youth-043
Originally uploaded by Pensillinn.

Engin ummæli: