Mynd sem við tókum þegar við komum á hótelherbergið í Stokkhólmi í ferðinni með vinnunni minni. Ég gleymdi gjörsamlega að minnast á hvað lobbíið var magnað á hótelinu. Maður stóð í voða flottu en þó venjulegu lobbíi en svo leit maður upp í loft og þá var opið upp og hótelherbergin voru eins og utan á húsi með svölum og alles, geggjað flott. Þetta gaf manni svo furðulega tilfinningu, eins og maður svifi. Þetta ruglaði mann alveg í rýminu.
þriðjudagur, september 27, 2005
mánudagur, september 26, 2005
föstudagur, september 23, 2005
Aðeins einn Nói Páll í heiminum
Í vinnunni um daginn fór ein konan inná netið og sá að aðeins er til 1 Nói Páll á landinu og auðvitað þá í öllum heiminum. Sonur minn er svo merkilega merkilegur að ég er enn að átta mig á því. Það er svo skrítið að eiga barn sem maður skilur ekki. Hann er svo ólíkur mér og með svo ólíkar þarfir. Ég hamast alltaf í því að fá það sem ég vil en hann stendur harður á sýnu og er HRIKALEGA þRJÓSKUR. Hann er mjög líkur mér í skapinu, veit ekkert samt um húmorinn ennþá. Hann er mjög sérvitur,,,mjög sérvitur og rosalega samkvæmur sjálfum sér. Hann hefur alltaf bara verið hann sjálfur og lætur önnur börn ekki hafa nein áhrif á sig. Hann er ekkert flókinn, það fer ekki á milli mála hvað hann fílar og hvað ekki.
miðvikudagur, september 21, 2005
Loksins stærri
Tókst loksins að stækka myndirnar í gsm-blogginu mínu. Þær voru alltaf svo litlar að maður sá varla hverjir voru á þeim.
mánudagur, september 19, 2005
Svíar..ikke så ligeglad
Já við Bjarki urðum ekki stólpa heilluð af Svíþjóð né sænska mannfólkinu. Kerfið stjórnar Svíunum, það er eitt það víst. Sænska þjónustufólkið er mjög vinalegt en hægari þjónustu höfum við sjaldan fengið. Bara það að taka 3 hluti og skanna strikamerkið á þeim var svo flókið og langt ferli að maður trúði þessu varla. Við skemmtum okkur konunglega yfir öllu því sem mátti ekki og það mætti halda að þeir fái mjög mikið út úr því að búa til bann-reglur. Eins líbó og Danir eru á mörgu svona þá eru Svíarnir algjörar andstæður. Föstudagskvöldið, eftir matinn á De fem små huse, ætluðum við á skemmtistað rétt hjá hótelinu og var Bjarka meinað aðgang vegna þess að dyraverðinum þótti hann of fullur!!! Við Elvar, sem er líka að vinna í Rönning, misstum andlitið og litum á Bjarka til að reyna sjá þessa gífurlegu ofurölvun en allt kom fyrir ekki. Kannski er ég bara blind á drykkju Bjarka???.. Kannski er hann bara ógeðsleg fyllibytta sem á ekki að hleypa inná staði..he he. Okkur var ekki hleypt inn þrátt fyrir mikla samningsviðræður við þennan high and mighty dyravörð en hann sendi okkur á annan bar, fyrir úrþvættalýðinn, og tókum við því með hinu mestu þakklæti. Næsta kvöld var mér meinaður aðgangur þar sem ég var of hress en þá skellti ég mér á gangstéttina og tók nokkrar armbeygjur fyrir dyravörðinn og þá hleypti hann mér inn sannfærður um að ég væri alls ekki drukkin. Þarna gabbaði ég Svíann aldeilis. Sama kvöldið lentum við í því að kaupa okkur 2 bjóra í gleri til að taka með okkur þar sem við vorum að fara að labba með hópnum á veitingastaðinn. Við vorum komin í lobbíið þegar þjónninn kom hlaupandi á eftir okkur, "nei nei, þetta er stranglega bannað í Svíþjóð"!!! Við snérum okkur við alveg lost, ekkert að fatta hvað var að manninum. "No alcahole allowed outside". "This is extremely forbidden", svo tekur hann bara bjórana af okkur, við búin að fá okkur einn sopa..púff, the money´s gone. Þetta kvöld fórum við í ferju frá höfn í Stokkhólm sem fór með okkur á eyju þar sem veitingahúsið Resturant J var. Þar beið okkar lúxus setustofa með fordrykk og unaðslegum mat. Bjarki gjörsamlega afsannaði það í þessari ferð að hann væri matvandur. Við borðuðum sjúklega góðan lax, gæsalifur og elgskjöt og vorum við Bjarki bæði að prófa eitthvað nýtt. Flestir vita það að á öllum stöðum í Svíðþjóð er bannað að reykja inná. Það fyndna er að á skemmtistöðum þar sem reykherbergi eru, þar er bannað að drekka í reykkompunni, þó svo þú sért á skemmtistað þar sem má drekka (en líklega ekki vera drukkinn).
laugardagur, september 17, 2005
fimmtudagur, september 15, 2005
Stokkhólms syndrom
Frábær vinnudagur í dag. Góð mæting í sænsku litunum og áttu margir verðlaun skilið fyrir. Sumir höfðu greinilega mikið brainstormað yfir þessu og lagt mikið í þetta. Ég er alveg tussuánægð með verðlaunin mín, fékk 3 smáflöskur með frutty teisti. Nú er bara að knúsa Nóa Pál eins mikið og maður getur og vona að hann fyrirgefi manni ef maður gerir sig að þjóðarskömm í Sverige um helgina. Við Bjarki förum héðan að heiman um 5 í fyrramálið..eða þ.e.a.s. í nótt. Hej Sverige, her kommer vi.!!!

2.Sæti
sunnudagur, september 11, 2005
Myndablogg

Á kaffihùsi ad bìda eftir kaffi og kökum. Kallinn þunnur og æstur ì sykur.
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone
Myndablogg

Myndformspartýið á bleiku skýi og tropical stemmning
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone

Myndformspartý
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone
föstudagur, september 09, 2005
miðvikudagur, september 07, 2005
sunnudagur, september 04, 2005
Gsm-inn minn
Síminn minn er mjög flottur og margir hafa commentað hann vegna þess. Ég vil leiðrétta það að ég hafi haldið að hann hefði kostað í kringum 50 þús þar sem hann kostaði líklega í kringum 35..en hver spáir svo sem í svoleiðis smátteríi.
Listamannahittingur hjá Möggu
Hittumst hjá Möggu glæsigellu á Skólavörðustígnum. Við vorum þarna 8-9 saman og það var rosa gaman:) Kíktum á Vegamót, sá Eið Smára þar..he he. Júlía, ein af gellunum í hópnum er víst vinkona hans og þær Magga voru með honum í bekk. Ég var að hugsa um að fá að taka mynd af honum fyrir bloggið mitt...þarna sveik ég ykkur illilega og frábæra bloggið mitt. Fórum svo á 22, var fín tónlist og mjög mikið af fólki. Við dönsuðum eins og spassar á Sólheimum og skemmtum okkur mjög vel. Við Gugga tókum leigubíl saman heim um 5..uss, ég veit.
Girls night out. Ég og Gugga../Gucci.
Myndina sendi ég

Magga snillingur og beautyqueen
Myndina sendi ég

Cucci beib
Myndina sendi ég

Fegurðardrottning..2. Sæti, ad bìða eftir almenningssalerni á 22
Myndina sendi ég

Girls night out. Ég og Gugga../Gucci.
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone

Magga snillingur og beautyqueen
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone

Cucci beib
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone

Fegurðardrottning..2. Sæti, ad bìða eftir almenningssalerni á 22
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone
laugardagur, september 03, 2005
Myndablogg


Á menningargöngu.
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone
Steingleymdi að blogga þessar myndir. Menningarnæturgaman. Vid röltum um bæinn og skoðuðum freakin, eins og bjarki myndi vilja kalla tad.
Þessir listamenn!
Myndina sendi ég
Knúið af GSMBloggi Og Vodafone
Sænskir dagar framundan og nýr bíll.
Á fimmtudeginum bauð Bogi, eigandi Johan Rönning mér og Bjarka út til Sverige...ef við "vildum" koma með. Ég sagði náttúrulega nei..or not. Maður átti nú enga von á þessu og var ekkert búin að hugsa neitt um að þetta gæti komið upp svo þetta var því mjög frábær og óvænt uppákoma. Þegar fólk er búið að vinna í 4 daga á vinnustað og fær svona tilboð getur það ekki verið annað en frábær vinnustaður. Við förum til Svíþjóðar 16. sept. í e-s konar árshátíðarferð. Verður farið í 2 hópum, fyrri á föstud. 16. og seinni á laugardeginum. Við Bjarki förum með fyrri hópnum sem ég er mjög ánægð með þar sem nánast allt er lokað á sunnudeginum..engar búðir..engin föt til að versla, because i´m going to SHOOOOP! Bjarki fór í gær og verslaði 1 stk. bíl. Fengum okkur Toyota (SURPRISE) Avensis, árg. 98, sjálfskiptur, grár og mjög vel með farinn, heavy ánægð með hann. Kostaði only 540, ógeðslega gott að keyra hann. Bláa Toyotan fer þá til Matta moviemakers. Hann á eftir að heilla dömuna sína uppúr skónum með honum. Uss, við eigum núna 3 Toyotur, geri aðrir betur. Ég set að sjálfsögðu mynd af bílnum á bloggið svona fyrir fólk eins og systur mína sem veit ekki hvernig avensis bílarnir eru:) Cheeeesmasterinn.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

















