laugardagur, september 03, 2005
Sænskir dagar framundan og nýr bíll.
Á fimmtudeginum bauð Bogi, eigandi Johan Rönning mér og Bjarka út til Sverige...ef við "vildum" koma með. Ég sagði náttúrulega nei..or not. Maður átti nú enga von á þessu og var ekkert búin að hugsa neitt um að þetta gæti komið upp svo þetta var því mjög frábær og óvænt uppákoma. Þegar fólk er búið að vinna í 4 daga á vinnustað og fær svona tilboð getur það ekki verið annað en frábær vinnustaður. Við förum til Svíþjóðar 16. sept. í e-s konar árshátíðarferð. Verður farið í 2 hópum, fyrri á föstud. 16. og seinni á laugardeginum. Við Bjarki förum með fyrri hópnum sem ég er mjög ánægð með þar sem nánast allt er lokað á sunnudeginum..engar búðir..engin föt til að versla, because i´m going to SHOOOOP! Bjarki fór í gær og verslaði 1 stk. bíl. Fengum okkur Toyota (SURPRISE) Avensis, árg. 98, sjálfskiptur, grár og mjög vel með farinn, heavy ánægð með hann. Kostaði only 540, ógeðslega gott að keyra hann. Bláa Toyotan fer þá til Matta moviemakers. Hann á eftir að heilla dömuna sína uppúr skónum með honum. Uss, við eigum núna 3 Toyotur, geri aðrir betur. Ég set að sjálfsögðu mynd af bílnum á bloggið svona fyrir fólk eins og systur mína sem veit ekki hvernig avensis bílarnir eru:) Cheeeesmasterinn.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli