mánudagur, september 19, 2005
Svíar..ikke så ligeglad
Já við Bjarki urðum ekki stólpa heilluð af Svíþjóð né sænska mannfólkinu. Kerfið stjórnar Svíunum, það er eitt það víst. Sænska þjónustufólkið er mjög vinalegt en hægari þjónustu höfum við sjaldan fengið. Bara það að taka 3 hluti og skanna strikamerkið á þeim var svo flókið og langt ferli að maður trúði þessu varla. Við skemmtum okkur konunglega yfir öllu því sem mátti ekki og það mætti halda að þeir fái mjög mikið út úr því að búa til bann-reglur. Eins líbó og Danir eru á mörgu svona þá eru Svíarnir algjörar andstæður. Föstudagskvöldið, eftir matinn á De fem små huse, ætluðum við á skemmtistað rétt hjá hótelinu og var Bjarka meinað aðgang vegna þess að dyraverðinum þótti hann of fullur!!! Við Elvar, sem er líka að vinna í Rönning, misstum andlitið og litum á Bjarka til að reyna sjá þessa gífurlegu ofurölvun en allt kom fyrir ekki. Kannski er ég bara blind á drykkju Bjarka???.. Kannski er hann bara ógeðsleg fyllibytta sem á ekki að hleypa inná staði..he he. Okkur var ekki hleypt inn þrátt fyrir mikla samningsviðræður við þennan high and mighty dyravörð en hann sendi okkur á annan bar, fyrir úrþvættalýðinn, og tókum við því með hinu mestu þakklæti. Næsta kvöld var mér meinaður aðgangur þar sem ég var of hress en þá skellti ég mér á gangstéttina og tók nokkrar armbeygjur fyrir dyravörðinn og þá hleypti hann mér inn sannfærður um að ég væri alls ekki drukkin. Þarna gabbaði ég Svíann aldeilis. Sama kvöldið lentum við í því að kaupa okkur 2 bjóra í gleri til að taka með okkur þar sem við vorum að fara að labba með hópnum á veitingastaðinn. Við vorum komin í lobbíið þegar þjónninn kom hlaupandi á eftir okkur, "nei nei, þetta er stranglega bannað í Svíþjóð"!!! Við snérum okkur við alveg lost, ekkert að fatta hvað var að manninum. "No alcahole allowed outside". "This is extremely forbidden", svo tekur hann bara bjórana af okkur, við búin að fá okkur einn sopa..púff, the money´s gone. Þetta kvöld fórum við í ferju frá höfn í Stokkhólm sem fór með okkur á eyju þar sem veitingahúsið Resturant J var. Þar beið okkar lúxus setustofa með fordrykk og unaðslegum mat. Bjarki gjörsamlega afsannaði það í þessari ferð að hann væri matvandur. Við borðuðum sjúklega góðan lax, gæsalifur og elgskjöt og vorum við Bjarki bæði að prófa eitthvað nýtt. Flestir vita það að á öllum stöðum í Svíðþjóð er bannað að reykja inná. Það fyndna er að á skemmtistöðum þar sem reykherbergi eru, þar er bannað að drekka í reykkompunni, þó svo þú sért á skemmtistað þar sem má drekka (en líklega ekki vera drukkinn).
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
bahahahaha hefði svp viljað sjá þig taka armbeygjur fyrir dyravörðinn!!
Kv Iris lesbian
Nákvæmlega. Þetta er alveg týpískt þú... Wrrraarw, Hehehee...
Kv,
Gudda dyke
Skrifa ummæli