mánudagur, október 24, 2005

Konur berjast, karlar verjast

Kvenréttindadagurinn rennur upp. Við kvk í fyrirtækinu gengum út 14:08, sóttum börnin, klæddumst frostgöllum og gengum eins og bændur á leið í fjós upp á Skólavörðuholt. Þar stóðum við og klöppuðum þegar hinir klöppuðu, löbbuðum þegar hinir löbbuðu og stoppuðum þegar hinir stoppuðu. Það var ótrúlegur fjöldi kvenna þarna og einn og einn kk inná milli..sennilega ekki komnir til að lenda á sjéns..Kuldinn var heldur mikill, þegar við vorum komnar niðrá Austurstræti var allt stopp. Ég og Nói Páll laumuðum okkur þá ská og upp með fólki í átt að Thorvaldsen Bar og hikaði ég að sjálfsögðu ekki við að nota krakkann mér til framdráttar. Þar komumst við í gegnum staðinn og út á Austurvöll. Þar var töluverður fjöldi en þó miklu auðveldara að komast áfram. Síðan gengum við upp laugarveginn, hitti Önnu Dóru, Erlu og Jónu og Olgu Kolbrúnu á leiðinni heim. Þær voru, eins og við Nói Páll, að vonast eftir því að fá sæti á einhverjum stað og heitan kaffibolla til að hlýja sér en það var sko ekki auðvelt. Við Nói hörkuðum þetta bara af okkur og gengum alla leið til baka að bílnum en við skildum hann eftir í Borgartúni, við Johan Rönning..ofcourse.
Kvenskörungarnir hjá rönning
Myndina sendi ég

Engin ummæli: