laugardagur, október 29, 2005

Sú flottasta á markaðnum

Nú höfum við Bjarki fjárfest í nýjustu og flottustu machintosh fartölvunni, Power book G4. Hún er fine fine fine. Bjarki er náttúrulega bara sjúkur maður. Honum finnst svo mikilvægt að eiga flott tæki, mikið passion hjá honum. Ég græði náttúrulega bara mjög mikið á þessu. Þetta er nú bara orðið rugl hvað tæknin er orðin flott. Maður fær svona úúúúhh tilfinningu þegar maður opnar tölvuna og kveikir á henni. Allt eitthvað svo framtíðarlegt..he he. Ég hef alltaf verið svo öfugt við Bjarka með lífsgæði og þess háttar. Fundist þetta vera markaðssetningarkjaftæði og áróður en þegar ég svo nota þennan búnað sem við höfum þá hugsa ég oft um það hvað það er frábært að hafa þetta. Ég veit það að ef Bjarki væri ekki maðurinn minn væri ég með eldddddgamla tölvu sem væri alltaf að bila og ég alltaf brjáluð útaf því, pirruð yfir hversu hæg hún væri og afhverju ég gæti ekki sett hin og þessi forrit í og auðvitað gæfist ég upp á öllu stússinu í kringum það. Hlutir eins og þegar vantar aðgangsorð, ekki hægt að starta einhverju vegna einhverrar error bilunar..drives me nutsssss. Svo veit maður ekki, ef maður væri einn, myndi maður þá ekki bara gera þetta því maður yrði?..væri kannski orðinn þrusu tölvunörd.

Engin ummæli: