laugardagur, október 29, 2005
Skissuvinna
Halelúja, nú hef ég náð að komast á skrið með skissuvinnu. Ég hef aldrei getað fest mig í því að skissa hugmyndir á blað. Þetta er bráðnauðsynlegt ef maður ætlar að halda jöfnu vinnuferli. Ég held að ég hafi einmitt alltaf átt við þann vanda að stríða að vera háð þessum hápunktum. Þá er ég rosa kríeitif, fæ mikið af hugmyndum og mála þær beint á strigann, svo koma tímabil þar sem orkan er að endurhlaða sig og þá er ég ófær um að mála. Maður verður að halda huganum við efnið, tengja saman allan hringinn, annars verður aldrei nein heild. Í gær fékk ég nokkrar skemmtilegar hugmyndir, bara með því að skissa. Það er eins og hugurinn opnist og maður fer að teikna hluti sem maður vissi ekki að væru í manni. Það hafa allir eitthvað að segja, bara spurning um hvað það er og hvernig maður setur það fram? Málverkið er svolítið erfitt að því leiti að það ríkir ákveðin hefð undirniðri sem er erfitt að spila með. Það er svo fín lína þegar maður er að mála myndefni sem hefur í sér frásögn og kannski hæðni. Maður verður að gera það með réttri málaratækni, það er svo auðvelta að fara yfir strikið þannig að myndin missi sig og verði velgjuleg og þreytandi too much.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli