laugardagur, október 29, 2005
Túrverkir
Túrverkir túrverkir túrverkir arrrrrrg. Ég lendi stundum í mjög slæmum túrverkjum. Þegar ég tek verkjalyf gera verkirnir ekkert annað en að dofna eilítið og í staðinn eykst bara sviminn. Það er eins og sé verið að saga mann í sundur. Þetta gerist aðallega þegar ég er óregluleg og sein..því seinni því meiri verkir og svo leiðir þetta svo niður í fætur. Það fylgir þessu líka ógleði og kaldur sviti, ég á erfitt með að sitja því það er eins og það myndist einhver stífla og þá fæ ég svona yfirliðstilfinningu, algjört rugl.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli