miðvikudagur, október 26, 2005

Vinnustofumál og Thorvaldsen Opnun

Þessi vika hefur farið upp og ofan varðandi vinnustofumætingu þar sem Bjarki hefur verið að vinna mikið frameftir. Ég er komin á skrið með risastóra andlitsmynd af Bjarka sem hann átti að fá frá mér í afmælisgjöf..4. okt. en það tafðist víst vegna þess að hann var úti viku fyrir afmælið og ég þurfti alltaf að fá pössun þegar ég fór á vinnustofuna. Hrönnsa systir var svo góð í sér að redda mér 2 kvöld en maður gerir víst ekki meistaraverk á 2 kvöldum..eða hvað? Á morgun er opnun hjá Siggu á Thorvaldsen Bar. Hún er mjög vinsæl myndlistakona og gerir mjög flottar myndir. Sigga er frænka Guggu vinkonu og selur grimmt í galleríum og er þar að auki ofurkona þegar kemur að afköstum.

Engin ummæli: