miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Jólahlaðborð Rönnings

Kvöldið var rosalega vel heppnað og fólkið skemmti sér mjög vel. Það voru veglegir vinningar og mikið lagt í skemmtun og skreytingar og veitingar. Ég hélt ég væri komin yfir þetta en svona er þetta þegar tunglið er fullt og bremsan er ekki á staðnum.audetoilette

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Myndablogg

Nùna lìtur myndin svona ùt. Èg puðaði svakalega við augun, ætlaði aldrei ad ná svipnum en svo loksins kom eitthvað sens ì þetta. Vonandi verður bjarki sáttur við nefið og augun. Nù þarf èg bara að gera myndina fylltari og vinna allan flötinn jafnvel.
Myndina sendi ég

Myndablogg

Myndina sendi ég

Myndablogg

Nærmynd af máluninni.
Myndina sendi ég

mánudagur, nóvember 21, 2005

Skrítnar mömmur

Mamma er skrítin skrúfa. Hún er ein af þeim sem á það til að hringja alltí einu í mann útaf draum sem hún dreymdi eða hugboðum og ótrúlegt en satt þá hittir hún oftast naglann á höfuðið þrátt fyrir að maður hafi ekki sagt eitt orð um. Þetta er voðalega furðulegt en líka næs að vita af því að mamma fáí sínar fréttir af manni þó svo maður haldi því leyndu. Ég vona að ég verði svona með Nóa Pál.

föstudagur, nóvember 18, 2005

Myndablogg

Rönning stællinn, bara klassi. Stefnir allt ì meiriháttar svall
Myndina sendi ég

Myndablogg

Hugguleg stemmning ì kaffistofunni
Myndina sendi ég

Myndablogg

Takk fyrir mig
Myndina sendi ég

Myndablogg

Svona á þetta ad vera!
Myndina sendi ég

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Silvía Nótt..ást / hatur

Frá fyrsta þætti fannst mér hún og þessir þættir mjög skemmtilegir. Loksins kom eitthvað svona "nýtt" sem gekk upp og virkaði fyndið og óvænt. Það er ekkert leiðinlegra heldur en fyrirsjáanlegar stælingar og ógeðslega miklar lúðaútgáfur..eins og í blessaða Batchelornum íslenska. Hóstinn þar er algjört djók og tekst engan veginn að gera þáttinn að sínum og hlutverkið sitt raunverulegt og eðlilegt. Ég og mínir félagar hafa flestir mjög gaman að Silvíu Nótt, Bjarka kallinum minn líka, finnst hún frábær. Um daginn eftir Edduverðlaunaafhendinguna vaknaði upp umræða um þessa skvísu og framkomu hennar. Ég og einn úr vinnunni vorum ansi sátt við hana, þá breyttust hinir bara í úlfa og blésu og blésu þar til..neiiii, húsið mitt er ekki byggt úr stráum, í þetta sinn var það úr múrsteinum..anyhow. Það kom mér á óvart hversu margir þoldu hana ekki, í raun allir nema ég og þessi eini. Kannski þegar maður pælir í´essu þá er það ekki skrítið þar sem öfgar hafa alltaf virkað on/off á fólk. Þetta var alla vega einn skemmtilegasti hádegisverður síðan ég byrjaði. Allir höfðu eitthvað að segja um hana og þættina hennar. Mér fannst opnunarkommentið hennar við verðlaunaafhendinguna um túrinn og skeiningarnar ekki alveg.. og á mörkunum að verða failure en hún nær alltaf að gera ekkert úr svoleiðis með þessum frösum sínum, heldur bara áfram í næsta og því verður lítið um óþægileg augnablik. Hún fær greinilega á fólk og það kemur kannski ekkert á óvart enda er það örugglega pointið líka. Okkur Bjarka finnst þetta alla vega alveg tímabær innkoma og breyting í íslenska sjónvarpið og finnst þetta bara gott mál. Það að hún hafi verið valin sjón varpsmaður ársins er ekki beint viðeigandi og hefur mikið verið sett út á það. Aðrir sem leggja mikinn metnað í sína þætti finnst þetta sennilega ansi ósanngjarnt.

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Sjóræningjahauskúpur, þrumur og eldingar..Pony og Malonie

Ég fór á vinnustofuna í gær og motthhh. f... hvað ég er svekkt. Myndin af Bjarka var á réttri leið en þá þarf maður náttúrulega að umturna henni eins og um annað verk væri að ræða, ..svona hér um bil og bara vegna þess að Bjarki var ekki nógu sáttur við hana. Hann er frekar ólíkur sjálfum sér eins og myndin er núna..hefði verið gaman að setja inn mynd af breytingunum en kl. var orðin 1 í nótt þegar ég hætti og ég þurfti að beita öllum vilja í að stoppa mig af, svona eins og í Liar Liar þegar Jim Carrey, var að reyna að krota ekki á sjálfan sig. Ég bíð ólm eftir að komast í að laga myndina en Bjarki er að vinna frameftir og svo fer hann í fótboltann kl. 22 Ég er innikróguð og kolæst í penslana mína. Ég er ekki að íkja one bit þegar ég segi það að ég hef aldrei haft svona mikinn áhuga á að stunda myndlistina af kappi. Ég er hæstánægð með það enda hundgömul að verða og alveg tímabært að fara hundskast af stað.

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Myndin ekki nógu góð

Þegar maður er mikið að mála og ég tala nú ekki um þegar maður vinnur mikið í sama verkinu geta ákveðin atriði farið framhjá manni, eða frekar að maður verði blindur á þau. Ég var orðin þokkalega sátt við hvert verkið stefndi en svo sá Bjarki það og sá um leið hvað mætti betur fara. Ég sá það ekki í fyrstu en svo bara púff..kom það í ljós. Maðurinn er að vísu með annað augað "latt"..ekki beint en augnlokið opnast ekki eins glennt og hitt, einmitt það sem mér hefur alltaf fundist svo heillandi við augun hans og kannski þess vegna hef ég kannski íkt þetta pínulítið:) Nefið er einnig skakkt og fyrirsætan ekki lengi að sjá það þar sem hann hefur alltaf verið sáttur við nefið sitt og því algjör óþarfi að gera það ófrínna. Hvað varð eiginlega um listrænu túlkunina!!! Má maður ekki setja kartöflunef á manninn??!

Myndablogg

Svona lìtur verkið ùt nùna. Litirnir orðnir dýpri og þèttari..meiri þyngd og nærvera.
Myndina sendi ég

Myndablogg

Myndina sendi ég

Myndablogg

Myndina sendi ég

Myndablogg

Close up af kallinum. Augun hans hafa alltaf heillað mig svo mikið. Alltaf fundist þau full af friði.
Myndina sendi ég

laugardagur, nóvember 12, 2005

Myndablogg

Uppáhaldskickassið mitt. Lìtið safn og slitid en þjòna miklum tilgangi og ùsa hamingju ì hverju skrefi.
Myndina sendi ég

Myndablogg

Gott kaffi
Myndina sendi ég

Myndablogg

ARGGG. Skrìtið ad halda ekki vatni yfir eigin dòti. Èg dýrka þessa og er strax komin með kvìðahnùt yfir hversu lengi þeir endist, èg muni gera allt fyrir þá, fram ì rauðan dauðann, you n me
Myndina sendi ég

Vinnustofan í gærkvöldi

Ég elska vinnustofuna mína. Núna er átak í gangi hjá okkur vinnustofuhópnum. Höfum aldeilis tekið til hendinni og eiga Beta og Pétur heiðurinn af því. Þau eru bæði nýir meðlimir og greinilega fengið sjokk á svínasúpunni okkar. Maður var orðinn svo samdauna þessu öllu að ég var alveg hætt að taka eftir stóru vélinni sem var í innganginum hjá okkur og er svona 1000 kg og 2 m að stærð og 1,5 á hæð. Við erum að tala um risa flikki sem maður bara sá ekki. Svona er örugglega þetta fólk sem Allt í drasli þátturinn gengur út á. By the way, ég meika ekki þann þátt, bara get ekki haldið út heilan þátt, finnst þetta svo leiðinlegt og hóstarnir eru skelfileg afskræming og falla eins og kamoflas í drullublettina hjá þessu liði. Kannski gott fólk og allt það en í röngum bransa, that´s for sure. Áfram með vinnustofuna, nú, já við höfum semsagt þrifið og hent út mjög miklu drasli og ætlum að gera þetta verulega hómí but respectful. Næst ætla ég að taka mína aðstöðu rækilega í gegn, henda út og þrífa, endurskipuleggja og fá mér mubblur sem mig vantar og nýtast mér. Ekki alltaf þetta bara að taka það sem aðrir eru að henda svona ef ég skildi hafa not fyrir hlutinn eða af því ég væri bara ekki með neinar mubblur at all. Ég var í stuði í gær og náði að vinna slatta í myndinni hans Bjarka. Hlustaði á fína fína tónlist og drakk kaldan öl með. Unaðsssslegttt að eiga svona stund með sjálfum sér og geðklofanum. Gleymdi að taka mynd en set inn mjög fljótlega, gaman að sjá hvernig myndin þróast.

Biluð læknaskrugga

Á sunnud.kvöldið fór ég með Nóa Pál á Læknavaktina því ég hafði tekið eftir stórum hvítum blöðrum undir tungunni hans þegar hann var að sleikja út um. Hafði einhvern tímann heyrt um svona á tungunni. Ég hringdi náttúrulega fyrst uppeftir og eins og vanalega var bara sagt, komdu bara með hann! Það bregst ekki! Við biðum þarna í rúmlegar 30 mín. og fengum konulæknir. Ég hugsaði..mm fínt, hún gæti verið góð. Hún varla skoðaði uppí hann og sagði hann vera með Herphes, þegar ég spurði hvort hún hefði náð að sjá almennilega uppí hann, sagðist hún hafa sé nóg enda væri ekki hægt að skoða þetta betur þar sem hann vældi svo mikið!!! Hún hlustaði hann og skoðaði eyrun. Ég spurði um útbrotin á úlnliðnum og ökklunum og hún sagði það vera vegna hitans. Hún lét mig síðan vigta hann til að finna út úr hvaða stíla ég ætti að gefa honum, 4x á dag. Þegar það var komið settist ég niður en Nói Páll stóð enn á vigtinni og var eitthvað að stíga á glerið sem var yfir skífunni, þá kallaði hún á hann ruddalega, viltu fara af vigtinni vinur, svona farðu til mömmu þinnar. Hlýddu, ekki stíga á glerinu, ætlarðu að brjóta glerið?? það er ég sem ræð hérna!!! Brjóta glerið..hann er 14 kg? Ég var eitthvað að reyna að kalla á hann líka en hún kallaði alltaf hærra, ekki skrítið að Nói hafi verið hræddur og vælt enda veikur líka og með þessa skessu yfir sér! Það endaði síðan með að hún stóð upp og náði í hann og svipurinn á honum þegar hún æddi í áttina til sín!!? Ég fékk strax efasemd um greininguna hjá henni, sagði konunum í vinnunni frá þessu daginn eftir og þá var ein þar sem spurði mig hvað þessi læknir hefði heitið og þegar ég sagði henni það fór hún að hlæja og sagðist hafa lent í henni fyrir löngu og hún hefði verið algjör skessa og alveg hrikaleg. Þær mönuðu mig í að fara með Nóa til barnalæknis. Ég fór á Domus með Nóa um kvöldið. Læknirinn þar var rétt búinn að skoða uppí hann og sagði strax að þetta væri ekki Herphes, sæi það á útbrotunum og líka að hitinn væri hærri, um 40, þegar Herphes veiran er. Þegar ég sýndi honum útbrotin sagði hann Nóa vera með Hand feet and mouth desease, sem þarfnast ekki lyfjagjafar sem betur fer, en Halló!!! að kellingin hafi verið svona ömurleg og líka kærulaus og greinilega ekki hæfur læknir. Hann spurði mig hvaða læknir hefði greint hann með Herphes og ég sagði honum það og þá hló hann og sagði það ekki koma sér á óvart!! Ég hafði samband við Læknavaktina á þriðjud. til að kvarta og var bent á að hafa samb. v. yfirlæknirinn sem ég gerði. Hann hringdi svo í mig og þar með náði þetta að skila sér. Ég sagði honum allt saman, passaði mig að vera yfirveguð en beinskeytt og alvarleg. Hann spurði hvort ég yrði sátt við það ef hann myndi persónulega tala við konuna og ég sagðist muna vera það en aðeins útaf því að þetta fór ekki verr. Hefði hann verið alvarlegra veikur og þurft lyf strax þá væri hún ekki í góðum málum og hver veit hversu oft þetta hefur gerst hjá henni og hvaða afleiðingar það gæti hafa haft??!!

föstudagur, nóvember 11, 2005

Aldrei lent í þessu áður

Stundum getur maður orðið svo latur við að blogga en lenti núna í því að geta ekki bloggað. Það var alveg sama hvað ég reyndi, textinn bara birtist ekki. Ég fór eftir öllum leiðbeiningum hjá Blogger help en ekkert gekk. Ég breytti stillingum og alles en bara púff, allur texti hvarf alltaf. Ég panikaði bara, fyndið, eins og maður var eitthvað óspenntur stundum þá sé ég það núna að ég er orðin háð þessu!

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Myndablogg

Myndablogg

Á laugard.Kvöldinu fòrum vid bjarki ùt ad borda á Madonnu. Hann fèkk rosa gòda pizzu og èg fèkk mèr skötusel..mmm
Myndina sendi ég

föstudagur, nóvember 04, 2005

Myndablogg

My Mouth,var ad leika mèr með gemsamyndavèlina. Þad er bara töff hvad myndirnar verða hráar og sjoppulegar. Gæti verid flott ad gera alvöru serìu með gemsanum!
Myndina sendi ég