laugardagur, nóvember 12, 2005
Biluð læknaskrugga
Á sunnud.kvöldið fór ég með Nóa Pál á Læknavaktina því ég hafði tekið eftir stórum hvítum blöðrum undir tungunni hans þegar hann var að sleikja út um. Hafði einhvern tímann heyrt um svona á tungunni. Ég hringdi náttúrulega fyrst uppeftir og eins og vanalega var bara sagt, komdu bara með hann! Það bregst ekki! Við biðum þarna í rúmlegar 30 mín. og fengum konulæknir. Ég hugsaði..mm fínt, hún gæti verið góð. Hún varla skoðaði uppí hann og sagði hann vera með Herphes, þegar ég spurði hvort hún hefði náð að sjá almennilega uppí hann, sagðist hún hafa sé nóg enda væri ekki hægt að skoða þetta betur þar sem hann vældi svo mikið!!! Hún hlustaði hann og skoðaði eyrun. Ég spurði um útbrotin á úlnliðnum og ökklunum og hún sagði það vera vegna hitans. Hún lét mig síðan vigta hann til að finna út úr hvaða stíla ég ætti að gefa honum, 4x á dag. Þegar það var komið settist ég niður en Nói Páll stóð enn á vigtinni og var eitthvað að stíga á glerið sem var yfir skífunni, þá kallaði hún á hann ruddalega, viltu fara af vigtinni vinur, svona farðu til mömmu þinnar. Hlýddu, ekki stíga á glerinu, ætlarðu að brjóta glerið?? það er ég sem ræð hérna!!! Brjóta glerið..hann er 14 kg? Ég var eitthvað að reyna að kalla á hann líka en hún kallaði alltaf hærra, ekki skrítið að Nói hafi verið hræddur og vælt enda veikur líka og með þessa skessu yfir sér! Það endaði síðan með að hún stóð upp og náði í hann og svipurinn á honum þegar hún æddi í áttina til sín!!? Ég fékk strax efasemd um greininguna hjá henni, sagði konunum í vinnunni frá þessu daginn eftir og þá var ein þar sem spurði mig hvað þessi læknir hefði heitið og þegar ég sagði henni það fór hún að hlæja og sagðist hafa lent í henni fyrir löngu og hún hefði verið algjör skessa og alveg hrikaleg. Þær mönuðu mig í að fara með Nóa til barnalæknis. Ég fór á Domus með Nóa um kvöldið. Læknirinn þar var rétt búinn að skoða uppí hann og sagði strax að þetta væri ekki Herphes, sæi það á útbrotunum og líka að hitinn væri hærri, um 40, þegar Herphes veiran er. Þegar ég sýndi honum útbrotin sagði hann Nóa vera með Hand feet and mouth desease, sem þarfnast ekki lyfjagjafar sem betur fer, en Halló!!! að kellingin hafi verið svona ömurleg og líka kærulaus og greinilega ekki hæfur læknir. Hann spurði mig hvaða læknir hefði greint hann með Herphes og ég sagði honum það og þá hló hann og sagði það ekki koma sér á óvart!! Ég hafði samband við Læknavaktina á þriðjud. til að kvarta og var bent á að hafa samb. v. yfirlæknirinn sem ég gerði. Hann hringdi svo í mig og þar með náði þetta að skila sér. Ég sagði honum allt saman, passaði mig að vera yfirveguð en beinskeytt og alvarleg. Hann spurði hvort ég yrði sátt við það ef hann myndi persónulega tala við konuna og ég sagðist muna vera það en aðeins útaf því að þetta fór ekki verr. Hefði hann verið alvarlegra veikur og þurft lyf strax þá væri hún ekki í góðum málum og hver veit hversu oft þetta hefur gerst hjá henni og hvaða afleiðingar það gæti hafa haft??!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli