sunnudagur, nóvember 13, 2005

Myndin ekki nógu góð

Þegar maður er mikið að mála og ég tala nú ekki um þegar maður vinnur mikið í sama verkinu geta ákveðin atriði farið framhjá manni, eða frekar að maður verði blindur á þau. Ég var orðin þokkalega sátt við hvert verkið stefndi en svo sá Bjarki það og sá um leið hvað mætti betur fara. Ég sá það ekki í fyrstu en svo bara púff..kom það í ljós. Maðurinn er að vísu með annað augað "latt"..ekki beint en augnlokið opnast ekki eins glennt og hitt, einmitt það sem mér hefur alltaf fundist svo heillandi við augun hans og kannski þess vegna hef ég kannski íkt þetta pínulítið:) Nefið er einnig skakkt og fyrirsætan ekki lengi að sjá það þar sem hann hefur alltaf verið sáttur við nefið sitt og því algjör óþarfi að gera það ófrínna. Hvað varð eiginlega um listrænu túlkunina!!! Má maður ekki setja kartöflunef á manninn??!

Engin ummæli: