fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Silvía Nótt..ást / hatur

Frá fyrsta þætti fannst mér hún og þessir þættir mjög skemmtilegir. Loksins kom eitthvað svona "nýtt" sem gekk upp og virkaði fyndið og óvænt. Það er ekkert leiðinlegra heldur en fyrirsjáanlegar stælingar og ógeðslega miklar lúðaútgáfur..eins og í blessaða Batchelornum íslenska. Hóstinn þar er algjört djók og tekst engan veginn að gera þáttinn að sínum og hlutverkið sitt raunverulegt og eðlilegt. Ég og mínir félagar hafa flestir mjög gaman að Silvíu Nótt, Bjarka kallinum minn líka, finnst hún frábær. Um daginn eftir Edduverðlaunaafhendinguna vaknaði upp umræða um þessa skvísu og framkomu hennar. Ég og einn úr vinnunni vorum ansi sátt við hana, þá breyttust hinir bara í úlfa og blésu og blésu þar til..neiiii, húsið mitt er ekki byggt úr stráum, í þetta sinn var það úr múrsteinum..anyhow. Það kom mér á óvart hversu margir þoldu hana ekki, í raun allir nema ég og þessi eini. Kannski þegar maður pælir í´essu þá er það ekki skrítið þar sem öfgar hafa alltaf virkað on/off á fólk. Þetta var alla vega einn skemmtilegasti hádegisverður síðan ég byrjaði. Allir höfðu eitthvað að segja um hana og þættina hennar. Mér fannst opnunarkommentið hennar við verðlaunaafhendinguna um túrinn og skeiningarnar ekki alveg.. og á mörkunum að verða failure en hún nær alltaf að gera ekkert úr svoleiðis með þessum frösum sínum, heldur bara áfram í næsta og því verður lítið um óþægileg augnablik. Hún fær greinilega á fólk og það kemur kannski ekkert á óvart enda er það örugglega pointið líka. Okkur Bjarka finnst þetta alla vega alveg tímabær innkoma og breyting í íslenska sjónvarpið og finnst þetta bara gott mál. Það að hún hafi verið valin sjón varpsmaður ársins er ekki beint viðeigandi og hefur mikið verið sett út á það. Aðrir sem leggja mikinn metnað í sína þætti finnst þetta sennilega ansi ósanngjarnt.

Engin ummæli: