laugardagur, nóvember 12, 2005

Vinnustofan í gærkvöldi

Ég elska vinnustofuna mína. Núna er átak í gangi hjá okkur vinnustofuhópnum. Höfum aldeilis tekið til hendinni og eiga Beta og Pétur heiðurinn af því. Þau eru bæði nýir meðlimir og greinilega fengið sjokk á svínasúpunni okkar. Maður var orðinn svo samdauna þessu öllu að ég var alveg hætt að taka eftir stóru vélinni sem var í innganginum hjá okkur og er svona 1000 kg og 2 m að stærð og 1,5 á hæð. Við erum að tala um risa flikki sem maður bara sá ekki. Svona er örugglega þetta fólk sem Allt í drasli þátturinn gengur út á. By the way, ég meika ekki þann þátt, bara get ekki haldið út heilan þátt, finnst þetta svo leiðinlegt og hóstarnir eru skelfileg afskræming og falla eins og kamoflas í drullublettina hjá þessu liði. Kannski gott fólk og allt það en í röngum bransa, that´s for sure. Áfram með vinnustofuna, nú, já við höfum semsagt þrifið og hent út mjög miklu drasli og ætlum að gera þetta verulega hómí but respectful. Næst ætla ég að taka mína aðstöðu rækilega í gegn, henda út og þrífa, endurskipuleggja og fá mér mubblur sem mig vantar og nýtast mér. Ekki alltaf þetta bara að taka það sem aðrir eru að henda svona ef ég skildi hafa not fyrir hlutinn eða af því ég væri bara ekki með neinar mubblur at all. Ég var í stuði í gær og náði að vinna slatta í myndinni hans Bjarka. Hlustaði á fína fína tónlist og drakk kaldan öl með. Unaðsssslegttt að eiga svona stund með sjálfum sér og geðklofanum. Gleymdi að taka mynd en set inn mjög fljótlega, gaman að sjá hvernig myndin þróast.

Engin ummæli: