föstudagur, desember 30, 2005

Myndablogg

Ì flugvèlinni á leidinni austur til didda tollu og ömmu klikk
Myndina sendi ég

miðvikudagur, desember 14, 2005

Myndir frá sýningunni

7252732366199a59

Long time since

Þá er þessi sýning búin. Hún heppnaðist bara vel sem heild og hafði aðeins fjölbreyttara yfirbragð en þær fyrri. Það voru video og hljóðverk, innsetningar og hljómsveit, teikningar og málverk. Sorrý til allra en ég vil lýsa því yfir að ég bauð engum á sýninguna, bauð að vísu fólkinu í vinnunni en ég var eitthvað down með þetta þar sem myndin af Bjarka misheppnaðist bigtime. Það var ágætis mæting á köflum en heldur rólegt þar á milli. Ég var persónulega ekki ánægð með mín verk en við í heild stóðum okkur bara vel og auðvitað gladdist maður yfir því. Við vorum á mörkunum að hætta við jólasýninguna en sem betur fer kýldum við þetta bara af, mössuðum sýninguna og allir urðu glaðir með það eftir á. Maður hafði ekki sofið í 2 daga auk þess að eiga erfitt með svefn en nú er farið að sjást aftur til sólu. Nú þarf maður að fara huga að jólunum, gera jólakort og huga að gjafamálunum. Ég hengdi upp seríur í gær, ekki seinna vænna. Mér var farið að líða eins og Scrootch ætti heima hérna. Nói er veikur, þessar pestir eru alveg ótrúlegar. Hann er með hálsbólgu og ljótan hósta. Hann var líka með rennu um daginn sem er eitthvað að lagast núna. Finnst hann líka vera með hita núna, en ekki háan.

laugardagur, desember 03, 2005

Jólasýning þ. 9. des á Deild 33b

Vinnustofan hefur verið nefnd Deild 33b, svona svolítil skírskotun í göngudeild geðdeildar eða bara þá hugmynd að til væri göngudeild fyrir listamenn því það væri bara ekki svo vitlaus hugmynd. Það er kannski ekki aðalhugmyndin, hún er frekar basic og tengist því að hún er staðsett við Skipholt 33b..ekkert flóknara en það. Nú er rétt um vika í jólasýninguna okkar og undirbúningur alveg á milljón. Auðvitað er öllum boðið, því fleiri sem koma því skemmtilegra. Það verða veitingar og hljómsveit..við erum alltaf svo grand á því en þetta hefur verið árlegur viðburður í mörg ár. Sýningin verður opnuð föstudaginn 9. des frá 20:00-12:00, laugard. og sunnud. frá 14:00-17:00 Það hafa orðið töluverðar breytingar á fólki hjá okkur og einnig í umhverfinu á vinnustofunni. Vinnustofan hefur lagast alveg heilmikið, var orðin svo dull eitthvað og ill umhirt.

fimmtudagur, desember 01, 2005

Og enn breytist hún

Ekki er þetta nú komið,,uss, hvað ætli maður verði lengi með þessa. Nú eru augun eins og af öðrum manni, aðeins og lítil og aðeins of skáeygð. Hann er með hringlóttari augu, alla vega er þetta það sem ég sé um leið og ég skoða myndina. Gæti líka verið að vinstra augað sé eilítið of langt frá, þurfi að koma oggulítið nær miðjunni. Kannski lagast þetta þegar ég stækka þau og móta betur. Hvað er það sem stingur þig mest við myndina?
Myndina sendi ég