laugardagur, desember 03, 2005
Jólasýning þ. 9. des á Deild 33b
Vinnustofan hefur verið nefnd Deild 33b, svona svolítil skírskotun í göngudeild geðdeildar eða bara þá hugmynd að til væri göngudeild fyrir listamenn því það væri bara ekki svo vitlaus hugmynd. Það er kannski ekki aðalhugmyndin, hún er frekar basic og tengist því að hún er staðsett við Skipholt 33b..ekkert flóknara en það. Nú er rétt um vika í jólasýninguna okkar og undirbúningur alveg á milljón. Auðvitað er öllum boðið, því fleiri sem koma því skemmtilegra. Það verða veitingar og hljómsveit..við erum alltaf svo grand á því en þetta hefur verið árlegur viðburður í mörg ár. Sýningin verður opnuð föstudaginn 9. des frá 20:00-12:00, laugard. og sunnud. frá 14:00-17:00 Það hafa orðið töluverðar breytingar á fólki hjá okkur og einnig í umhverfinu á vinnustofunni. Vinnustofan hefur lagast alveg heilmikið, var orðin svo dull eitthvað og ill umhirt.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli