fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Boðskort á vinnustofusýninguna



OPNUN 8. DESEMBER KL. 20:00-23:00, OPIÐ LAUGARD OG SUNNUDAG SÖMU HELGINA FRÁ 13-17
VEITINGAR Í BOÐI, JÓLAPÚNS, JÓLAKÖKUR, JÓLALISTAVERKABASAR..

ALLIR VELKOMNIR.

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Vinnustofusýning 8. des kl 20:00

Nú verður, eins og hefð er orðin á vinnustofunni, haldin sýning í desember mánuði þar sem við höldum jólasýningu..sýnum listir okkar og bjóðum upp á lifandi músík, jólaglögg og fleira. Þetta er alltaf svo huggulegt hjá okkur svo ég mæli eindregið með að fólk mæti og láti sér líða vel með okkur. Öll verk eru til sölu og verður nóg í boði fyrir
listunnendur. Shitt, árið er að verða búið...er ekki kominn tími til að gera þá eitthvað öðruvísi?? Vinnustofan er að Skipholti 33b (v/hliðiná Saga Film, sama hús og hljóðfærahúsið og Bingó Vinabær), 105 Rvk

mánudagur, nóvember 06, 2006

sunnudagur, nóvember 05, 2006

pönk-kvöld

Ég hef mikið dálæti á pönki. Núna er ég að hlusta á snilldarpönk, japansk band melt bananas. Það er nefnilega fyndið þar sem ég var með það á heilanum fyrir mörgum árum síðan að stofna japansk pönk band, og ég veit sumir muna vel eftir því:)
Í gær var æfing nr. 2 haldin á vinnustofunni minni. Fyrsta æfingin var fyrir u.þ.b. ári síðan. Með þessu framhaldi kemur mjög bráðlega út plata, stútfull af óheiðarlegu pönki.
Æfingin var alveg klikkuð, höfum fengið 2 nýja meðlimi frá því á 1. æfingunni. Kata kom þarna sterk inn, frábær tónlistarspíra. Einnig Sveinn sem gerði góða hluti. Næstum því of góður fyrir minn smekk en get ekki neitað því að hann var ansi nauðsynlegur.
Hlakka mikið til næstu æfingar. Verst að mottó bandsins er að spila ölvaður og það gengur víst ekki hvaða kvöld sem er..he he. Annað mottó er að ef einhver ské kunni að vera orðinn of fær á ákveðið hljóðfæri er hann umsvifalaust látinn fara...á annað hljóðfæri..he he.

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

What´s life got to do with it

Allt, bara allt. Stundum langar mann að taka lífið og tilveruna og krossfesta hana eins og hún leggur sig, snúa uppá hana þar til hún fer að grenja og pissa síðan í sig. Mig langar að bjóða mínu eigin lífi birginn, ég stjórna hér..ekki þessi tilvera sem er bara og hefur orðið vegna hinna og þessarra atburða. Hefur fólk ekki einhvern tímann gert eitthvað eða lent í einhverju sem það hélt að það gæti ekki eða hefði ekki í sér að gera. Dæmi eins og með mannsröddina..hvað er hún og yfir hverju býr hún. Erum við ekki öll með rödd inní okkur sem heyrist ekki daglega..og hefur kannski aldrei heyrst í fyrr en e.t.v. einn dag þegar eitthvað svo spennulosandi gerist að sú rödd brýst út? Er maður þá búinn að frelsast frá tilverunni sem umlykur okkur öll???

miðvikudagur, október 25, 2006

mánudagur, október 23, 2006

Airwaves smarewaves

Ég vil bara lýsa yfir óánægju minni á þessu systemi að bjóða aðeins passa á alla tónleikana í einu. Afhverju er ekki hægt að borga sig inná þá tónleika sem maður hefur áhuga á að sjá. Afhverju þarf ég að greiða pening fyrir öll hin böndin sem spila einhvers staðar annars staðar útí bæ á meðan ég horfi á tónleikana sem ég vil sjá. Við erum ekki gengin í ESB, er það nokkuð? Free will...yyy, hvar er einstaklingurinn í þessu öllu saman? Fjölskylduvænt??..nei, þetta er bara fyrir listamenn á listamannalaunum,listamenn á atvinnuleysisbótum, atvinnuleysingja, unglinga sem búa heima hjá mömmu og pabba, dópista sem kóka lókar sig til að byggja upp sitt auma sjálfstraust. Uss, jeg er vred. Alltaf hugsar maður, næst ætla ég sko að fara á Airwaves en viti menn, alltaf er manni gert erfitt fyrir með einhverju rugli eins og þessu..Ég veit um fullt af fólki sem langaði að fara en gat ekki leyft sér að kaupa 7000 króna miða fyrir 1-2 tónleika. Fullt af fólki t.d. á vini sem eru í einu af böndunum sem spila á Airwaves en geta ekki hugsað sér að borga þessa upphæð bara fyrir að sjá þá. Ég skil ekki afhverju kostar ekki bara 1500 inná hverja og eina tónleika og þá getur maður bara play along, hoppað á milli og fengið miklu meira út úr skemmtuninni án kúgunar. Maður gæti jafnvel orðið svo ánægður með tónleikana sem maður færi á að maður myndi fara á aðra og aðra..sem gæti orðið að enn meiri gróða í lokin. Ég veit þetta hentar mjög vel fyrir þá sem lifa og hrærast í þessum heimi, vinna ekki 150% starf og eiga fjölskyldu, en það er ansi mikið af þannig fólki sem hefur einmitt líka áhuga á svona hlutum. Ástæðan fyrir því að passarnir eru er líklega vegna minna vesens, hafa þetta einfalt og ESB legt, en ég vil bara hafa þetta eðlilegt og frjálst.

fimmtudagur, október 19, 2006

Girls out






Nokkrar myndir sem ég gleymdi að setja á netið. Set inn fleiri seinna.

föstudagur, september 29, 2006

Leika sér með eldinn

Samtímakröfurnar fullríða samböndum, ég tel mig vissa um það. Ég orða þetta með grófum hætti en þegar til alls kemur er bara aðeins of margt sem gengur ekki upp þegar kemur að félagskröfum og sambandskröfum. Dæmi: Þú ert haldinn þeirri hugmynd að þú verðir að mæta á allar uppákomur sem vinnan þín bíður uppá. Allar uppákomur sem vinnan stendur fyrir eru um helgar, þær eru með áfengi í boði og standa langt fram á kvöld og eða nótt. Margar uppákomur eru makalausar og jafnvel kallaðar "Stefnumót"!! Fólk á að eiga sér líf fyrir utan vinnu, sinna fjölskyldunni, stunda vinnuna meira en af fullum hug,
mæta á vinnu-djamm og sanna fyrir öðrum útá við að í sinni vinnu sé besti mórallinn??
Ég spyr, ef þú ert í vinnu þar sem mórallinn er frábær..afhverju þarftu þá að fara út um helgar og sanna það enn frekar? Afhverju er í öllum hádegum í vinnunni skemmtiatriði og/ hljómsveitir að koma spila? Hverju er verið að sækjast eftir??? Ég furða mig oft yfir hversu dofin ég er orðin gagnvart mínu persónulega lífi..þetta er kannski bara málið.

laugardagur, september 23, 2006

Do you dare

I am 44% Asshole/Bitch.
Part Time Asshole/Bitch.
I may think I am an asshole or a bitch, but the truth is I am a good person at heart. Yeah sure, I can have a mean streak in me, but most of the people I meet like me.

föstudagur, september 15, 2006

London beibeeee




























Mikil stemmning hefur verið í vinnunni enda erum við á leið til London í fyrramálið. Heilmikil djammferð. Við kallinn förum á fótboltaleik Liverpool vs Chelsea á sunnudaginn en annars ætlar maður bara að láta vindáttina ráða. Verðum í frábærri staðsetningu hótelslega séð, á Radisson hóteli rétt við British Museum, og hlökkum mikið til að fara. Sendi e.t.v. myndir frá ferðinni...hver veit. Over and out....

mánudagur, september 04, 2006

Myndskilaboð

Working class heros komin á fædingardeildina
Myndina sendi ég

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Myndablogg

Spennan hleðst upp fyrir næstu sýningu. Miklar strokur og ausandi tilfinningar
Myndina sendi ég

Menningarnótt

Menningarnóttin var óvenju menningarleg í sniðum þessa helgina þar sem engin ofurdrykkja átti sér stað. Fór á opnun hjá Aroni á Turpentie á föstudeginum, með Betu. Við hittum þar félaga okkar í 33b, Möggu og Pétur.Öflugur listamannahópur þar á ferð. Mættum á svæðið, sáum og sigruðum??? Sýningin var góð hjá Aroni. Það var boðið uppá tónlistaratriði, búin að gleyma hvað bandið heitir. Um kvöldið fór maður svo bara á vinnustofuna og málaði eins og spassi til hálf 4 Laugardagurinn var mjög fjölskylduvænn, löbbuðum í bæinn, hittum Matta og Snæju á Hressó. Nói Páll var bara hress, lá á gólfinu með bílinn sinn. Fórum á Carnegie Art Award sýninguna í Hafnarhúsinu. Málverkið er í sókn, svo er eitt víst. Sókn (meaning, ekkert nýtt, bara sókn=vinsældir). Aðallega var bara gaman að vera hluti af mannlífinu.

föstudagur, ágúst 18, 2006

Myndablogg

In progressiness, kannski meistaraverk ì fæðingu??
Myndina sendi ég

Myndablogg

Hvað á maður svo ï pokahorninu annað en kòngsann sjálfann eika hvergi-smeika
Myndina sendi ég

Myndablogg

Tònlistamenn þurfa lìka að borða..Hèr sjáum við hauk einn snæða fyrir átökin
Myndina sendi ég

Myndablogg

Skriðdrekarnir á skrifstofunni..Og baldursbráin handan við hornið
Myndina sendi ég

Myndablogg

Hvað er þetta flaxandi fyrir aftan trippin??
Myndina sendi ég

Myndablogg

Þòrir tangò, svellkaldur við stýrið
Myndina sendi ég

Myndablogg

Snædìs, sterkur nýliði ì rönning
Myndina sendi ég

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Support your local painter

Arnar opnaði sýninguna Support your local painter, á Thorvaldsen um helgina sl.
Sýningin er flott og opnunin heppnaðist vel.

föstudagur, ágúst 04, 2006

Myndir að austan

Hér koma loks nokkrar myndir frá Seyðó og Atlavík. Það jafnast ekkert á við sveitasæluna. Það var æðislegt að koma austur, fórum úr rigningunni í góða veðrið, spiluðum gólf á hverjum degi. Hittum Lilju rokkara, alltaf jafn sæt og hress. Kíktum á Lárurnar, aðalpleisið á Seyðó, á laugard.kv. Óla stóra systir, Elsa og Jóhann Breki komu í heimsókn yfir helgina. Mennirnir þeirra báðir á sjónum. Héldum grillveislu hjá Döggu, hún fékk engu ráðið um það þrátt fyrir að vera með littlu tvíburana og á barmi taugaáfalls. Nói Páll gjörsamlega elskaði Jóhann Breka sem er 11 mán. Léku sér saman án nokkurs alvarlegs vesens. Það er alveg merkilegt hvað hann er góður við lítil börn og finnst bara fínt að ég haldi á þeim, klappar þeim bara og segir ohh hvað hann er sætur. Fórum í Skaftfell, menningarmiðstöðina og kíktum á sýningu bræðranna Sigurðar Guðmundssonar og Kristjáns. Sigurður er minn al-uppáhalds íslenski listamaður. Maður sem hefur eitthvað að segja. Ég hrífst óendanlega af verkum hans og finnst hann einstaklega klár í að koma ákveðnum hugsunum og hugmyndum á framfæri. Ofaná það er hann mikill húmoristi sem mér finnst oft og sérstaklega í hans tilviki, brúa bilið á milli listarinnar og áhorfandans.