Hvernig skynjarðu myndina.??
mánudagur, janúar 30, 2006
Afmælisbarn dagsins
Við Nói skemmtum okkur vel í dag. Ég bakaði vöfflur, Nói var kampakátur með það. Kíktum svo til ömmu og afa í spagetti boloneges og gjörsamlega borðuðum fyrir árið. Það var rosa stuð á Nóa Páli og frænkum hans Töru og Írisi. Það er alveg frábært að sjá hvað þau ná vel saman og hafa gaman að hvort öðru. Þetta var mjög góð helgi, róleg og hugguleg eins og öldruðum er sæmandi..he he. Hibb hibb húrreiiiii fyrir 31 árs afmælinu mínu.
sunnudagur, janúar 29, 2006
www.heldriver.com
Það er alltaf gaman að sjá fólk finna sig..sérstaklega vonlausa aumingja...he he. Gummi er gott dæmi um manneskju sem hefur gert góða hluti sem er full vert að skoða..svo farið á slóðina hér að ofan...gott kaffi. Hann byrjaði á að stofna til sambands fyrir mörgum árum og gadd demitt ef konan hans er ekki sorrý núna en eftir 2 börn og skilnað þá fann hann sig í ljósmyndun og ég held að þetta sé í 1. sinn sem ég sé eitthvað gott í honum þar sem hann er vanur að vera hálfviti, detta í það og lenda í slagsmálum, enda í steininum og missa af öllu kvenfólkinu..en svona eru þessi guttar, eru bara algjörlega lost þar til one day. Það skrítna við first impression að það er oft allt annað uppá teningnum þegar maður skoðar verkin í 2. sinn en ég segi ekki meir. Hann virðist alla vega vera í ágætis jafnvægi við sig og sína...ljósmyndalega séð.
laugardagur, janúar 28, 2006
Verkbítur
Málaði þessa eftir teikningu sem ég gerði. Nokkuð ánægð með tilfinninguna í henni miðað við að það sé í raun engin raunveruleg fyrirmynd...svona uppá skugga og ljós.
Skíðaferð til Ítalíu
Bjarki er mikill ævintýrakall og ég held hann sé ansi líkur afa sínum, báðum öfum sínum reyndar. Hann fór í morgun ásamt Böðvari afa sínum og Arnari frænda sínum til Madonna á Ítalíu í vikuskíðaferð. Hann tók með sér bretti sem hann fékk lánað hjá Svavari tamningarmanni. Ég er enn ekki farin að átta mig á að hann sé farinn en það kemur að því. Ég vona bara að það komi ekki einhver skíðadólgur og straui hann niður í brekkunum. Við Nói verðum bara dugleg að gera eitthvað skemmtilegt og höldum uppá afmælið mitt á morgun í huggulegheitum. Maður verður náttúrulega að baka köku, annað er ekki hægt.
Listbókaflóð og Ráðhúsið
Nú er ég duglega að versla mér bækur og hef verið rosalega ánægð og heppin með allar bækur sem ég hef pantað hjá Amazon hingað til. Á enn eftir að fá eina bók um Alice Neel sem ég hlakka mjög til að fá. Það er um að gera að sanka að sér því sem er manni kært. Umhverfið er oft endurspeglun á sjálfum manni og um leið næring. Ég hef gert alltof lítið að því að huga að þessu og er svona að taka dálítið á því. Hef verið að kynna mér listaskóla í San Fransisco, finnst ég þurfa að komast í meira nám og þreifa aðeins fyrir mér á erlendri grundu. Meir um það síðar en það sem er helst nú á dagskrá er sýningin í Ráðhúsinu í kringum 20. febrúar.
föstudagur, janúar 27, 2006
Elsa Gjöveraa
Mútta er öll að koma til. Nú er planið að fikta ekki mikið meira við andlitið heldur einbeita sér að umhverfinu. Ætla að setja klyfblóm utan um axlirnar hennar. Ég man nefnilega eftir þannig blómi sem hún hélt uppá og svo hefur hún alltaf lagt sig fram við að eiga blóm..þó svo þau deyji nánast alltaf hjá greyjið kellunni. Það verður að gefa henni stig fyrir allan þróttinn og viljann.
laugardagur, janúar 21, 2006
föstudagur, janúar 20, 2006
föstudagur, janúar 13, 2006
Myndablogg
Nùna er tetta komid held èg. Á eftir bakgr.og fötin en svo veit madur aldrei hvad madur sèr á morgun
þriðjudagur, janúar 10, 2006
Ertu að verða náttúrulaus???
Það er margt sem maður gerir sér ekki grein fyrir og þá er oftast bara betra að þegja, hvað um það.Við Bjarki fórum á tónleikana í Höllinni á laugard.kvöldinu s.l. Það var margt í Höllinni og kátt líka. Við vorum í stæði..eins og við séum einhverjir bílar! Fyrri helminginn af tónleikunum var ég alveg að drepast í bakinu, tók svo verkjalyf sem voru kannski ekki alveg að virka en svo þegar tónlistin varð meira áhugaverð fór þetta allt að koma. Ég var í heild ánægð með tónleikana, fannst sitthvað hér og þar hafa mátt fara betur. Sigurrós hefði mátt taka 1 lag, lagið sem þeir tóku var svo stutt að það jarlaði við heilt lag. Kannski var´etta break hjá þeim. Þó svo að þau séu löng hjá þeim þá er það engin afsökun. Ég held alla vega ekki að þeim yrði vísað í burtu af sviðinu þar sem prógrammið þeirra væri of langt! Kannski var það ekki málið og kannski erum þeir orðnir anti-náttúrsinnar:) Ég og örugglega margir aðrir vildi mjög svo sjá þá taka í hljóðfærin og fylla salinn af hrífandi hljómluffsum. Muggison, Björk, Damien Rice, Ghost digital, Rass, Ham og Bubbi stóðu sig vel á sviði. Það þýðir ekki að vera ekki með neitt show þegar fólk stendur í 4-5 klst. að bíða eftir skemmtun. Showið getur verið bara það að listamaðurinn komi með innlifun, eins og Damien eða útávið, sviðsframkoma o.þ.h. Bjarka fannst hálfasnaleg að sjá Ham aftur, aðallega Sigurjón Kjartansson, ég skil það að sumu leyti. Það er aðallega þessi ímynd sem þeir höfðu sem getur varla sagtst vera sú sama. Óttarr er samt alveg sami snillingurinn, sumir segja hann vera hálfgerða geimveru. Ég missti mig alveg þegar þeir spiluðu enda dauðfegin að heyra eitthvað sem maður þekkir svona vel. Maður spáir samt í því eins og með Björk, nú er hún svo hrikalega fræg að það nær ekki nokkurri átt. Hvernig getur svona listamaður staðið sig illa á sviði? Þegar maður er orðinn svona frægur, hefur þá fólk almennt enga skoðun á því sem listamaðurinn gerir eða er það bara þakklátt fyrir það sem það fær og heldur sínum skoðunum útaf fyrir sig? Þá fer maður að pæla út frá hlið listamannsins, what´s the fun in that?
Málverk af Gamla Settinu
Er núna byrjuð á myndum af mömmu og pabba. Mamma bað mig fyrir örugglega 2 árum að gera myndir af þeim, ég var þá bláfátæk og sagði já ef þau myndu borga mér fyrir, ömurlegt..ég veit. Síðan hafa þau mátt bíða. Ég gerði myndir af þeim fyrir löngu sem ég var ekki nógu ánægð með og nú er ég að endurmála þær. Myndinni af mömmu miðar þokkalega áfram. Ljósmyndin af henni sem ég mála út frá er bara svo léleg að það hálfa væri nóg, bæði er hún yfirlýst, engir skuggar o.s.frv. og svo er hún líka óskýr í þokkabót..he he. Það er samt alveg í lagi því ég styðst bara við basic atriðin og nota svo bara tilfinninguna. Ég er nokkuð sátt við hana en munnsvæðið er ekki gott. Sennilega þarf ég að dekkja neðrivörina og laga í kringum munninn. Hálsinn er ekki fullunninn og svo er það hárið, fötin og peysan..eða hvað sem ég ætla að dressa kelluna í. Huummm, kannski ég láti hana í eitthvað sluttí he he. Pabbamynd bíður þar til mamma er alveg reddí. Það verður gaman að gefa þeim þetta.Ég er byrjuð á algjörlega nýrri mynd af Bjarka. Ég skipti um striga og alles, heilmikil vinna í því en stundum verður maður bara að játa sig sigraða. Ég var orðin kolgeggjuð á henni og það lá við að þegar ég horfði á hana það versnaði hún bara að sjálfusér. Það er líka mikill söknuður í henni, má ekki hugsa um það, var svo ánægð með hana í 3. sinn sem ég málaði hana þá gerðist eitthvað göldrótt. Það var alveg mögnuð tilfinning. Það var eins og einhver væri að mála í gegnum mig. Allt sem kom út úr penslinum var fullkomið. Ég vildi bara óska að ég hefði klárað myndina í það skipti frekar en að koma daginn eftir og byrja upp á nýtt og þar með breyttist hún til hins verra, þá varð ég svo áköf og hætti ekki fyrr en það var of seint. Það sem heillaði mig svona var áferðin sem ég náði og tæknin og litirnir sem ég notaði. Þetta reynir á en ég hef mjög gaman að þessu. Hef ekki gert margar portrett en langar að gera miklu fleirri.
Er ad gera verk af gamla settinu.
fimmtudagur, janúar 05, 2006
Nýárshitt&þetta
Gleðilegt nýtt ár allir! Nú er maður aldreilis fullur af ákveðni og jákvæðni varðandi árið og að sjálfsögðu gerði maður áramótaheit. Ég hef staðið mig nokkuð vel só far og segi bara að hver dagur sé sigur í sjálfum sér. Ég á alltof oft erfitt með að ná endum saman, hugurinn og líkaminn eru stundum ekki alveg i takt...ekki spassalega meint.. Það þyrfti stundum að berja mann áfram svo maður færi á fætur og sinnti áhugamálunum, fjölskyldunni og bara u name it! Inn á milli á maður góðar rispur en það er bara ekki að ganga og svo fíla ég það bara ekki að vera í svona pirrandi hringrás of hell. Ég er spennt fyrir árinu og hef góða tilfinningu fyrir því.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)





























